Akademísk staða í viðskiptadeild
25. mars 2025

Akademísk staða í viðskiptadeild

Háskólinn á Bifröst leitar að akademískum starfsmanni í 50-100% stöðu við viðskiptadeild Háskólans. Við leitum að einstaklingi með metnað og áhuga á að taka virkan þátt í þróun kennslu og rannsókna við deildina sérstaklega á sviði verkefnastjórnunar eða skyldum greinum. Háskólinn á Bifröst leggur áherslu á samþættingu fræða og framkvæmdar í kennslu og er leiðandi í þróun stafræns fjarnáms á háskólastigi hér á landi. Háskólinn á Bifröst er með starfsstöðvar í Reykjavík og á Hvanneyri.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Kennsla á fræðasviðinu
  • Rannsóknir, fræðastörf á fræðasviðinu og umsóknir í rannsóknarsjóði
  • Þátttaka í samfélagslegri umræðu á fræðasviðinu
  • Þátttaka í stefnumótun og stjórnun
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Framhaldsmenntun á háskólastigi á sviði verkefnastjórnunar, breytingastjórnunar eða verkfræði, doktorspróf er æskilegt
  • Kennslureynsla á háskólastigi
  • Rannsóknareynsla
  • Reynsla og þekking á leiðtogahæfni og þekking á notkun AI er kostur
  • Reynsla af uppbyggingu og mótun námskeiða er kostur
  • Reynsla af stjórnun á háskólastigi er kostur
  • Góð reynsla og tengsl innan atvinnulífs
  • Hæfni í mannlegum samskiptum, þjónustulund og skipulagsfærni
  • Mjög góð færni í íslensku og ensku, í ræðu og riti

Með umsókn fylgi ferilskrá yfir nám, störf og rannsóknir þar sem kennslureynsla er m.a. útlistuð, afrit af útskriftarskírteinum ásamt stuttu kynningarbréfi. Í kynningarbréfi komi fram áhugasvið, sýn, nálgun og áherslur umsækjanda í kennslu og rannsóknum.

Tekið verður tillit til þarfa og áherslna viðskiptadeildar og hve vel umsækjendur falla að þeim. Starfsheiti verður ákvarðað út frá hæfismati sem viðkomandi fer í eftir að gengið hefur verið frá ráðningu.

Umsóknarfrestur er til og með 10. apríl 2025. Umsóknir og frekari upplýsingar eru á alfred.is 

Nánari upplýsingar veitir Dr. Guðrún Johnsen deildarforseti viðskiptadeildar - deildarforsetivd@bifrost.is