Í BA námi í opinberri stjórnsýslu er fléttað saman þeim þremur höfuðgreinum sem fást við rekstur þjóðarbúsins; lögfræði, stjórnmálafræði og viðskiptafræði. Nemendur kynnast lagaumhverfi hins opinbera, öðlast skilning á pólitísku gangverki ríkisvaldsins og fá hagnýta þjálfun í margvíslegri rekstrarfærni. Allt eru það þættir sem nýtast starfsfólki hins opinbera til að dýpka skilning á samhengi opinbers rekstrar og öðlast nauðsynlega innsýn í stjórnsýslu ríkis og sveitarfélaga. Grunnnámið í opinberri stjórnsýsla er til 180 ECTS eininga.
Nemendur sækja námskeið á sviði opinberrar stjórnsýslu og þeirrar aðferðafræði sem þau þurfa að kunna skil á. Innan lögfræðinnar eru það námskeið í stjórnsýslurétti, stjórnskipunarréttim upplýsingalögum og lögum um persónuvernd. Þá eru námskeið í viðskiptafræði, svo sem er varðar vinnurétt, mannauðsstjórnun og verkefnastjórnun. Nemendur sækja enn fremur grunnnámskeið í stjórnmálafræði og siðfræði og geta síðan valið á milli ýmissa námskeiða á sviði lögfræði, viðskipta, stjórnmálafræði, hagfræði og heimspeki, svo eitthvað sé nefnt.
Námið er tilvalið fyrir þá sem starfa nú þegar, eða hafa áhuga á að starfa hjá opinberum stofnunum og innan opinberrar stjórnsýslu, bæði hjá ríki og sveitarfélögum eða á vettvangi stjórnmála, þar með talið innan stjórnmálaflokka.
-
Lærðu heima
Háskólinn á Bifröst er í fararbroddi í fjarnámi, sem gerir þér kleift að vera í námi við HB á þínum forsendum. Áhersla er lögð á einstaklingsbundna nálgun og námsumhverfi er stafrænt og sveigjanlegt. Stafrænt fjarnám er þannig frábær valkostur fyrir fólk sem hentar að vera í sveigjanlegu háskólanámi, vegna vinnu með námi eða af einhverjum allt öðrum ástæðum. Nánar um námið við Háskólann á Bifröst
-
Fyrirkomulag kennslunnar
Við Háskólann á Bifröst er áhersla lögð á persónulega þjónustu til nemenda. Ánægjukannanir sýna að mikill meirihluti nemenda er afar ánægður með námið og samskipti við kennara og starfsfólk.
Hverri önn við Háskólann á Bifröst er skipt upp í tvær lotur. Verkefnavinna er stór þáttur í námsmati háskólans og vinna nemendur að verkefnum jafnt og þétt yfir lotur skólaársins.
Sjö vikur eru í hvorri lotu og ein staðlota, þar sem nemendur hitta kennara og samnemendur og taka þátt í umræðum og hópverkefnum. Önnur sérstaða í kennsluháttum Háskólans á Bifröst eru misserisverkefni eða missó, eins og verkefnin eru gjarnan nefnd. Missó tekur mið af á kennsluaðferð sem kallast lærdómsþróun (e. learning by developing) og miðar að því að auka hæfni nemenda fyrir vinnumarkað að námi loknu. Nánar um námið á Bifröst
-
Framvinda og námslok
Grunnnám við Háskólann á Bifröst er 180 ECTS fjarnám og geta nemendur að verulegu leyti ráðið námshraða sínum.
Jafnframt gefst kostur á því að ljúka flestu grunnnámi á tveimur og hálfu ári. Sumarönn er kennd við Háskólann á Bifröst og nemdur geta því lokið 80 ECTS einingum á ári í stað 60. Námskeiðum má þannig að mestu leyti ljúka á fyrstu tveimur námsárunum. Á þriðja ári gera nemendur svo lokaverkefni auk þess að ljúka einingum sem kunna að vera eftir vegna starfsþjálfunar eða valnámskeiða.
-
Inntökuskilyrði
Til að geta innritast í námið þurfa nemendur að hafa lokið stúdentsprófi eða sambærilegri menntun t.d. úr Háskólagátt Háskólans á Bifröst.
Forgangsröðun við inntöku nemenda ræðst af einkunnum.
-
Umsóknarfrestur
Opið er fyrir umsóknir um nám við Háskólann á Bifröst vegna haustannar 2024 til og með 5. júní nk.