Stjórnun í verslun og þjónustu

Undirstaða framþróunar verslunar og þjónustu á Íslandi

BS-nám í viðskiptafræði með áherslu á stjórnun í verslun og þjónustu er eina sérhæfða námið hér á landi sem miðar að því að mæta sívaxandi kröfum atvinnulífsins um faglega hæfni og sérþekkingu á sviði verslunar- og þjónustu. Námið veitir nemendum einstakt tækifæri til að leggja grunn að farsælum ferli í einni af mikilvægustu atvinnugreinum samfélagsins.

Hvað gerir námið einstakt?
Námið sameinar kenningar úr viðskiptafræði, verslunarfræðum, þjónustufræðum og markaðsfræði. Nemendur fá innsýn í stjórnunarhætti, rekstur og þjónustuáskoranir og undirbúa námskeiðin nemendur sérstaklega fyrir spennandi störf í krefjandi og síbreytilegu umhverfi.

Skyldu námskeið

  1. Þjónustustjórnun
  2. Birgða-, vöru- og innkaupastjórnun
  3. Leiðtogafærni og mannauðsstjórnun
  4. Sölustjórnun

Bundin valnámskeið*

  1. Stefnumiðuð stjórnun viðskiptatengsla (CRM)
  2. Markaðssamskipti og auglýsingastjórnun
  3. Gæðastjórnun í verslun og þjónustu
  4. Stafræn viðskipti

*Nemendur skrá sig í eitt af fjórum námskeiðum sem merkt eru sem bundið val en stendur öll námskeiðin til boða.

Námið hentar sérstaklega þeim sem starfa eða stefna á störf í þessum greinum, enda byggir sérhæfing námsins á áföngum sem eru þróaðir með sérþarfir verslunar- og þjónustufyrirtækja í huga. Námið hentar því þeim sem vilja:

  • Efla faglega þekkingu og sérhæfingu á sviði verslunar og þjónustu, hvort sem er í framlínustörfum eða stjórnunarhlutverkum.
  • Styrkja stöðu sína á vinnumarkaði og taka þátt í að efla samkeppnishæfni verslunar- og þjónustu á Íslandi.
  • Undirbúa sig fyrir stjórnunarstöður eða stefna á nýjar áskoranir innan geirans.

Af hverju að velja þetta nám?

  • Náin tengsl við atvinnulífið: Námið er unnið í samstarfi við leiðandi fyrirtæki og stofnanir í greininni, sem tryggir nemendum raunsæja og hagnýta nálgun.
  • Reynslumiklir kennarar: Sérfræðingar með áralanga reynslu í verslunar- og þjónustustjórnun veita kennslu sem byggir á nýjustu rannsóknum og aðferðum.
  • Hagnýt nálgun: Áhersla er lögð á verkefnavinnu sem byggir á raunverulegum dæmum úr íslensku atvinnulífi.

Starfsmöguleikar að námi loknu
Útskrifaðir nemendur búa yfir þekkingu og leikni sem nýtist á fjölbreyttum starfsvettvangi.Námið opnar dyr að starfsframa í fyrirtækjum sem leggja áherslu á fagmennsku, sjálfbærni og framúrskarandi þjónustu.

Fagstjóri námsins er Dr. Edda Blumenstein

Athugið að kennsluskrá verður aðgengileg eftir 20. febrúar og opnað verður fyrir umsóknir þann 1. mars.


  • Nám í viðskiptafræði við Háskólann Bifröst

    Markmiðið með grunnnámi í viðskiptafræði við Háskólann Bifröst er að gera nemendum kleift að nýta frumkvæði sitt og sjálfstæði til aukinna áhrifa og ábyrgðarstarfa.

    Fjarnámið miðar að því að nemendur afli sér þekkingar og færni á sviði viðskipta auk þess að vinna að raunverulegum verkefnum. Fræðilegi hluti Þess felur í sér skilning á fræðilegri greiningu og kenningum og hæfni til að vinna með þær. Þverfagleg nálgun miðar svo að því að efla gagnrýna og skapandi hugsun, atvinnulífi og samfélagi til góða. 

    Nánar um sérstöðu námsins við Háskólann á Bifröst 

  • Umsóknarfrestur

    Ekki er tekið við umsókum fyrir vorönn 2025. Umsóknarfrestur vegna náms á haustönn 2025 er til 5. júní.

    Opnað verður fyrir umsóknir vegna haustannar þann 1. mars 2025.

    Sækja um

  • Fyrirkomulag kennslunnar

    Við Háskólann á Bifröst er áhersla lögð á persónulega þjónustu til nemenda. Ánægjukannanir sýna að mikill meirihluti nemenda er afar ánægður með námið og samskipti við kennara og starfsfólk.

    Hverri önn við Háskólann á Bifröst er skipt upp í tvær lotur. Verkefnavinna er stór þáttur í námsmati háskólans og vinna nemendur að verkefnum jafnt og þétt yfir lotur skólaársins.

    Sjö vikur eru í hvorri lotu og ein staðlota, þar sem nemendur hitta kennara og samnemendur og taka þátt í umræðum og hópverkefnum. Önnur sérstaða í kennsluháttum Háskólans á Bifröst eru misserisverkefni eða missó, eins og verkefnin eru gjarnan nefnd. Missó tekur mið af á kennsluaðferð sem kallast lærdómsþróun (e. learning by developing) og miðar að því að auka hæfni nemenda fyrir vinnumarkað að námi loknu. Nánar um námið á Bifröst

  • Framvinda og námslok

    Grunnnám við Háskólann á Bifröst er 180 ECTS fjarnám og geta nemendur að verulegu leyti ráðið námshraða sínum.

    Jafnframt gefst kostur á því að ljúka flestu grunnnámi á tveimur og hálfu ári. Sumarönn er kennd við Háskólann á Bifröst og nemdur geta því lokið 80 ECTS einingum á ári í stað 60. Námskeiðum má þannig að mestu leyti ljúka á fyrstu tveimur námsárunum. Á þriðja ári gera nemendur svo lokaverkefni auk þess að ljúka einingum sem kunna að vera eftir vegna starfsþjálfunar eða valnámskeiða. 

  • Inntökuskilyrði

    Til að geta innritast í námið þurfa nemendur að hafa lokið stúdentsprófi eða sambærilegri menntun t.d. úr Háskólagátt Háskólans á Bifröst.

    Forgangsröðun við inntöku nemenda ræðst af einkunnum.

  • Lærðu heima

    Háskólinn á Bifröst er í fararbroddi í fjarnámi, sem gerir þér kleift að vera í námi á þínum forsendum. Áhersla er lögð á einstaklingsbundna nálgun og námsumhverfi er stafrænt og sveigjanlegt. Stafrænt fjarnám er þannig frábær valkostur fyrir fólk sem hentar að vera í sveigjanlegu háskólanámi, vegna vinnu með námi eða af einhverjum allt öðrum ástæðum. 

    Nánar um námið við Háskólann á Bifröst