Fjármálastjórnun


BS-nám í viðskiptafræði með áherslu á fjármálastjórnun er sérhæft nám sem er ætlað öllum sem vilja dýpka þekkingu, leikni og færni í störfum á fjármálamarkaði og innan fjármáladeilda fyrirtækja og stofnana.

Lögð er rík áhersla á sérhæfða fjármálaþekkingu sem tekur mið af nýjustu straumum á fjármálamörkuðum, auk þess sem nemendur fá tækifæri til að byggja upp hagnýta reynslu og hæfni í gegnum misserisverkefni í greiningu og gagnalæsi, auk stofnunar fyrirtækja og grænnar nýsköpunar.

Kennarar eru sérfræðingar á sviði fjármála með yfirgripsmikla reynslu úr atvinnulífinu, sem leitast við að gera námið hagnýtt og beintengt raunverulegum áskorunum í fjármálum. Þetta nám er því kjörið fyrir þá sem leita leiða til að efla starfshæfni sína á örum og síbreytilegum fjármálamarkaði.

Sérhæfing kemur fram í eftirfarandi skyldunámskeiðum:

  • Fjármál fyrirtækja
  • Fjármál og fjármálamarkaðir
  • Kostnaðarbókhald
  • Stjórnunarbókhald

Fagstjóri námsins er Erlendur Ingi Jónsson

  • Nám í viðskiptafræði við Háskólann Bifröst

    Markmiðið með grunnnámi í viðskiptafræði við Háskólann Bifröst er að gera nemendum kleift að nýta frumkvæði sitt og sjálfstæði til aukinna áhrifa og ábyrgðarstarfa.

    Fjarnámið miðar að því að nemendur afli sér þekkingar og færni á sviði viðskipta auk þess að vinna að raunverulegum verkefnum. Fræðilegi hluti Þess felur í sér skilning á fræðilegri greiningu og kenningum og hæfni til að vinna með þær. Þverfagleg nálgun miðar svo að því að efla gagnrýna og skapandi hugsun, atvinnulífi og samfélagi til góða. 

    Nánar um sérstöðu námsins við Háskólann á Bifröst 

  • Lærðu heima

    Háskólinn á Bifröst er í fararbroddi í fjarnámi, sem gerir þér kleift að vera í námi á þínum forsendum. Áhersla er lögð á einstaklingsbundna nálgun og námsumhverfi er stafrænt og sveigjanlegt. Stafrænt fjarnám er þannig frábær valkostur fyrir fólk sem hentar að vera í sveigjanlegu háskólanámi, vegna vinnu með námi eða af einhverjum allt öðrum ástæðum. 

    Nánar um námið við Háskólann á Bifröst

  • Fyrirkomulag kennslunnar

    Við Háskólann á Bifröst er áhersla lögð á persónulega þjónustu til nemenda. Ánægjukannanir sýna að mikill meirihluti nemenda er afar ánægður með námið og samskipti við kennara og starfsfólk.

    Hverri önn við Háskólann á Bifröst er skipt upp í tvær lotur. Verkefnavinna er stór þáttur í námsmati háskólans og vinna nemendur að verkefnum jafnt og þétt yfir lotur skólaársins.

    Sjö vikur eru í hvorri lotu og ein staðlota, þar sem nemendur hitta kennara og samnemendur og taka þátt í umræðum og hópverkefnum. Önnur sérstaða í kennsluháttum Háskólans á Bifröst er misserisverkefni eða missó, eins og verkefnið er gjarnan nefnt. Missó tekur mið af á kennsluaðferð sem kallast lærdómsþróun (e. learning by developing) og miðar að því að auka hæfni nemenda fyrir vinnumarkað að námi loknu. Nánar um námið á Bifröst

  • Framvinda og námslok

    Grunnnám við Háskólann á Bifröst er 180 ECTS fjarnám og geta nemendur að verulegu leyti ráðið námshraða sínum.

    Jafnframt gefst kostur á því að ljúka flestu grunnnámi á tveimur og hálfu ári. Sumarönn er kennd við Háskólann á Bifröst og nemdur geta því lokið 80 ECTS einingum á ári í stað 60. Námskeiðum má þannig að mestu leyti ljúka á fyrstu tveimur námsárunum. Á þriðja ári gera nemendur svo lokaverkefni auk þess að ljúka einingum sem kunna að vera eftir vegna starfsþjálfunar eða valnámskeiða. 

  • Inntökuskilyrði

    Til að geta innritast í námið þurfa nemendur að hafa lokið stúdentsprófi eða sambærilegri menntun t.d. úr Háskólagátt Háskólans á Bifröst.

    Forgangsröðun við inntöku nemenda ræðst af einkunnum.

  • Inntökuskilyrði

    Til að geta innritast í námið þurfa nemendur að hafa lokið stúdentsprófi með þriðja hæfniþrepi  í stærðfræði eða sambærilegri menntun t.d. úr Háskólagátt Háskólans á Bifröst. Ef lengra en fimm ár eru síðan nemendur luku þriðja hæfniþrepi er mælt með að þeir skrái sig í fornámskeið. Þeir sem ekki hafa lokið þriðja hæfniþrepi þurfa að ljúka fornámskeiði í stærðfræði áður en þeir hefja nám við deildina.

    Fornámskeið í stærðfræði er boði í ágústmánuði og lýkur áður en kennsla hefst á haustönn.

    Forgangsröðun við inntöku nemenda ræðst af einkunnum.

  • Umsóknarfrestur

    Opið er fyrir umsóknir vegna skólaársins 2025 - 2026. Umsóknarfrestur er til og með 5. júní.

    Sækja um