
Útskriftarhátíð Háskólans á Bifröst 15. febrúar 2025
6. febrúar 2025Útskriftarhátíð Háskólans á Bifröst
Útskriftarhátíð Háskólans á Bifröst verður í Hjálmakletti í Borgarnesi, laugardaginn 15. febrúar 2025, kl. 11:00 til 13:00.
Alls munu 88 nemendur útskrifast á hátíðinni, þar af 39 á meistarastigi. Ef litið er til einstakra deilda háskólans, þá verða samtals 53 nemendur brautskráðir úr viðskiptadeild, 11 úr lagadeild og 24 úr félagsvísindadeild.
Hátíðardagskráin er með áþekku sniði og áður. Framkvæmdastýra kennslu og þjónustu, Halldóra Lóa Þorvaldsdóttir setur háskólahátíðina og að því búnu flytja nemendur f.h. bæði grunnnema og meistaranema ávörp og afhent verða verðlaun fyrir framúrskarandi námsárangur. Að því búnu ávarpar Margrét Jónsdóttir Njarðvík útskriftarefnin.
Söng- og tónlistarkonan geðþekka, Soffía Björg Óðinsdóttir flytur valin sönglög í upphafi dagskrár og á milli atriða.
Unnt verður að fylgjast með útskriftarhátíðinni í beinu streymi hér á háskólavefnum og á Facebook síðu háskólans.
Hvers vegna að velja Bifröst?
- Í fararbroddi í fjarnámi
- Allt námsefni aðgengilegt á netinu þegar þér hentar
- Skólinn kemur til þín og mætir þínum þörfum
- Sterk tengsl við atvinnulífið
- Persónuleg þjónusta