
Breyttur viðtalstími náms- starfsráðgjafa
Breyttur viðtalstími náms- starfsráðgjafa
Náms- og starfsráðgjafi Háskólans á Bifröst er Halldóra Lóa Þorvaldsdóttir og býður hún upp á viðtöl á miðvikudögum, fimmtudögum og föstudögum frá kl. 8 – 15. Náms- og starfsráðgjöf Háskólans á Bifröst er staðsett á fyrstu hæð í húsnæði skólans, Hamragörðum. Einnig er boðið upp á viðtöl á starfstöð Háskólans á Bifröst að Suðurlandsbraut 22 á fyrirfram auglýstum dagsetningum.
Hlutverk náms og starfsráðgjafa er að veita nemendum margvíslegan stuðning og þjónustu meðan á námi stendur með það að markmiði að stuðla að auknum árangri og vellíðan í námi.
Hvers vegna að velja Bifröst?
- Í fararbroddi í fjarnámi
- Allt námsefni aðgengilegt á netinu þegar þér hentar
- Skólinn kemur til þín og mætir þínum þörfum
- Sterk tengsl við atvinnulífið
- Persónuleg þjónusta