Brautskráning frá Háskólanum á Bifröst 23. febrúar
20. febrúar 2019

Brautskráning frá Háskólanum á Bifröst 23. febrúar

Laugardaginn 23. febrúar næstkomandi kl. 13.00 verður brautskráning frá Háskólanum á Bifröst. Alls munu 79 nemendur útskrifast úr grunn- og meistaranámi sem og Háskólagátt.

Rektor skólans Vilhjálmur Egilsson mun útskrifa nemendur ásamt deildarforsetum. Tónlistaratriði í athöfninni verða í höndum Karlakórsins Söngbræðra ásamt undirleikurum.

Boðið verður upp á móttöku að athöfn lokinni.

Hægt verður að fylgjast með beinni útsendingu frá athöfninni hér.