Brautskráning frá Háskólanum á Bifröst 22. júní
18. júní 2019

Brautskráning frá Háskólanum á Bifröst 22. júní

Laugardaginn 22. júní næstkomandi kl. 13.00 verður brautskráning frá Háskólanum á Bifröst. Alls munu um 80 nemendur útskrifast úr grunn- og meistaranámi sem og Háskólagátt.

Rektor skólans Vilhjálmur Egilsson mun útskrifa nemendur ásamt deildarforsetum. Tónlistaratriði í athöfninni verða í höndum Karlakórsins Söngbræðra ásamt undirleikurum.

Boðið verður upp á móttöku að athöfn lokinni.

Hægt verður að fylgjast með beinni útsendingu frá athöfninni hér.