Brautskráning frá Háskólanum á Bifröst 22. febrúar
19. febrúar 2020

Brautskráning frá Háskólanum á Bifröst 22. febrúar

Laugardaginn 22. febrúar næstkomandi kl. 11.00 verður brautskráning frá Háskólanum á Bifröst. Alls munu 69 nemendur útskrifast úr grunn- og meistaranámi.

Rektor skólans Vilhjálmur Egilsson mun útskrifa nemendur ásamt deildarforsetum. Tónlistaratriði í athöfninni verða í höndum Karlakórsins Söngbræðra ásamt undirleikurum.

Boðið verður upp á móttöku að athöfn lokinni.

Hægt verður að fylgjast með beinni útsendingu frá athöfninni hér.