13. febrúar 2024

Bjarki og Ólöf Tara í beinni

Þriðjudaginn 13. febrúar kl. 14:00 sendir Háskólinn á Bifröst hlaðvarpið Hatursorðræða - hvað er til ráða? út í beinni útsendingu frá stúdíóinu í Hafnar.haus. Bjarki Þór Grönfeldt, lektor við HB og Ólöf Tara hjá Öfgum, ræða orsakir og afleiðingar þess að rýmið sem hatursorðræða fær í samfélaginu okkar virðist fara stöðugt vaxandi, samfara aukinni skautun í þjóðfélagsumræðunni og öfgahyggju.

Hér er á ferðinni áhugaverð umræða, sem snertir að einhverju leyti flest ef ekki öll svið samfélagsins. Að útsendingu lokinni verður upptaka á hlaðvarpinu gerð aðgengileg á helstu veitum.

Viðburðurinn er hluti af dagskrá sem háskólarnir standa sameiginlega að á Jafnréttisdögum 2024.

Sjá FB-síðu viðburðarins

Sjá alla viðburði á Jafnréttisdögum 2024