
Ársfundur Háskólans á Bifröst
Boðað er til aðalfundar / ársfundar þann 25. maí næstkomandi kl. 13:00. Fundurinn verður haldinn á Bifröst.
Dagskrá fundarins er svohljóðandi:
- Skýrsla stjórnar og rektors um starfsemi háskólans fyrir næstliðið skólaár.
- Ársreikningur vegna næstliðins skólaárs lagður fram til kynningar og samþykktar.
- Kynning á efnahag og rekstri allra þeirra félaga, dóttur- og hlutdeildarfélaga, sem tengjast rekstri Háskólans á Bifröst.
- Rekstraráætlun með tilheyrandi fjárfestingaráætlun fyrir yfirstandandi skólaár.
- Kosning löggilts endurskoðanda fyrir Háskólann á Bifröst.
- Tillögur til breytinga á skipulagsskrá Háskólans á Bifröst og samþykkt þeirra eftir atvikum.
- Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna fyrir nýliðið starfsár.
Hvers vegna að velja Bifröst?
- Í fararbroddi í fjarnámi
- Allt námsefni aðgengilegt á netinu þegar þér hentar
- Skólinn kemur til þín og mætir þínum þörfum
- Sterk tengsl við atvinnulífið
- Persónuleg þjónusta