Samþætt markaðssamskipti
Með samhæfðum markaðssamskiptum mynda fyrirtæki alhliða áætlun um markaðssamskipti sem tilgreinir hvernig allir þættir markaðsstarfsins tala til neytenda. Mikilvægi samruna ýmissa skilaboða sem neytendur móttaka er skoðað m.t.t. auglýsinga í fjölmiðlum, verðlagningar, beinna markaðsherferða, umtali, söluhvata og í hvers konar verslana þar sem vörur fyrirtækisins eru seldar. Samhæfð markaðssamskipti er stefnumótandi ferli sem er ætlað að tryggja að skilaboð og samskiptaáætlanir séu samræmdar þvert á allar málpípur fyrirtækisins og að þeim sé beint að viðskiptavinum.
Fyrir hverja, þátttökugjald, aðgangsviðmið og einingar
Námskeiðið er fyrir þá sem vilja læra hvernig nýta má samhæfð markaðssamskipti til árangurs
Þátttökugjald er 75.000 kr.
Þátttakendur þurfa að hafa lokið grunnnámi á háskólastigi
Námskeiðið veitir 6 ECTS einingar á meistarastigi.
Fyrirkomulag
Námskeiðið er kennt í lotubundnu fjarnámi. Námskeiðið stendur yfir í sjö vikur og nemendur mæta í eina vinnustofu í Borgarnesi. Kennsla hefst 24. febrúar 2024 og stendur til 12. apríl 2024. Um fjögurra stunda vinnustofa á Bifröst verður á tímabilinu 20.-23. mars í Borgarnesi, en nánari tímasetning er kynnt í námskeiðinu. Námsmat fer fram dagana 6.-12. apríl.
Þátttakendur taka námskeiðið ásamt nemendum í grunnnámi Háskólans á Bifröst. Þátttakendur geta búist við að verja um 25-30 klukkustundum á viku í vinnu við námskeiðið.
Kennari
Kennari námskeiðsins er Ragnar Már Vilhjálmsson
Styrkir
Mörg stéttarfélög bjóða upp á styrki vegna námskeiða. Kannaðu málið hjá þínu stéttarfélagi.
Umsóknarfrestur og skráning
Umsóknarfrestur er til 23. febrúar 2025.
Vinsamlegast láttu fylgja gögn í viðhengi sem sýna að þú uppfyllir aðgangsviðmið.
Allar nánari upplýsingar eru veittar á netfanginu endurmenntun@bifrost.is.
Hér má sjá nánari upplýsingar um Endurmenntun til eininga við Háskólann á Bifröst
Skráning
Skrá mig
Smelltu á hnappinn til að sæka um námskeið í Endurmenntun Háskólans á Bifröst.
Svona skráir þú þig á námskeið:
- Fylla þarf út umsóknareyðublað í umsóknargáttinni.
- Ef þú skráir þig í námskeið með aðgangsviðmið, þarftu að bíða eftir að samþykki berist með tölvupósti.
- Til að ljúka við skráningu þarf að ganga frá greiðslu í umsóknargátt og sækja um notendanafn fyrir innra kennslukerfi Háskólans á Bifröst, Uglu https://ugla.bifrost.is. Þar birtast allar upplýsingar um námskeiðið.
Nánari upplýsingar eru veittar á endurmenntun@bifrost.is eða í síma 433 3000.