Samtal um skapandi greinar - Nýsköpun á sviði tónlistar
Rannsóknasetur skapandi greina (RSG) í samstarfi við CCP býður í samtal um skapandi greinar fimmtudaginn 6. febrúar klukkan 8:30 - 10 í húsakynnum CCP Í Grósku, 3. hæð, að Bjargargötu 1, 102 Reykjavík. Yfirskrift fundarins að þessu sinni er Nýsköpun á sviði tónlistar. Erindum verður streymt Hér.
Samtal um skapandi greinar er röð óformlegra funda sem RSG stendur að í samvinnu við CCP. Með fundaröðinni vill RSG skapa samræðuvettvang áhugafólks um skapandi greinar með því að tengja saman hagaðila í einkageiranum, akademíunni og frá stofnunum og stjórnsýslunni og efla þannig umræðuna um menningu og skapandi greinar. Að þessu sinni munu fulltrúar þriggja íslenskra nýsköpunarfyrirtækja á sviði tónlistar segja frá starfsemi sinni.
Ólafur Bjarki Bogason er stofnandi og framkvæmdastjóri Genki, hönnunar- og tæknifyrirtæki frá Reykjavík með áherslu á tónlist. Vörur Genki hafa verið notaðar um allan heim við góðan orðstír. Nýjasta vara sem Genki hefur þróað er KATLA, einstakur hljóðgervill, innblásinn af öðru stærsta eldfjalli Íslands. Á fundinum mun Ólafur, segja frá fyrirtækinu og vegferð þess fram til dagsins í dag.
Margrét Júlíana Sigurðardóttir er stofnandi og framkvæmdastjóri fyrirtækisins Moombix, sem býður upp á kennslurými og markaðstorg fyrir lifandi tónlistarkennslu á netinu. Í kennslurýminu hefur fyrirtækið þróað heilstætt umhverfi fyrir tónlistarkennslu með stafrænum tólum sem geta stutt við námið með margvíslegum hætti. Á fundinum veitir Margrét innsýn í Moombix sem var stofnað árið 2022.
Pétur Eggerz, tæknistjóri og meðstofnandi Overtune, segir frá nýsköpunarfyrirtækinu sem starfar á sviði tónlistarsköpunar. Overtune var stofnað árið 2020 og hefur vakið athygli bæði á íslenskum og erlendum mörkuðum.
Í kjölfar erinda lýkur streyminu og opnað verður fyrir umræður meðal fundargesta sem Anna Hildur Hildibrandsdóttir stýrir.
Vinsamlegast skráið mætingu (á staðinn) hér. Athugið að sætaframboð er takmarkað.
Skráningu lýkur kl. 12 miðvikudaginn 5. febrúar.
Hvers vegna að velja Bifröst?
- Í fararbroddi í fjarnámi
- Allt námsefni aðgengilegt á netinu þegar þér hentar
- Skólinn kemur til þín og mætir þínum þörfum
- Sterk tengsl við atvinnulífið
- Persónuleg þjónusta