6. ágúst 2024

Nýnemadagur háskólagáttar

Þetta er allt að gerast! Nýnemadagur Háskólagáttar Háskólans á Bifröst verður á Hvanneyri þann 9. ágúst, kl. 10:00 - 14:30.

Þau sem komast ekki á staðinn þann 9. ágúst geta tekið þátt í nýnemakynningu sem fram fer á Teams mánudaginn 19. ágúst nk. Vinsamlegast athugaðu að skrá verður þátttöku hér.

Á nýnemadeginum er nýjum nemendum veitt innsýn í námsfyrirkomulagið hjá háskólagátt.

Dagskráin hefst á því að Margrét Jónsdóttir Njarðvík, rektor Háskólans á Bifröst, setur háskólagátt. Að því búnu fjallar Agnar Jón Egilsson um samvinnu til árangurs út frá mismunandi hliðum. Að hádegisverði loknum fer svo fram kynning á þeim tölvukerfum sem nemendur þurfa að kunna skil á, ásamt þeirri þjónustu sem nemendum stendur til boða, s.s. af hálfu náms- og starfsráðgjafar og bóksasafni HB.

Við hvetjum öll til að mæta og kynna sér fyrirkomulag námsins og námsannarinnar sem er framundan í háskólagátt. Það gerir upphaf skólaársins að mörgu leyti aðgengilegra og auðveldara viðfangs. Þátttaka er nemendum að kostnaðarlausu.

Kennsla hefst síðan laugardaginn 10. ágúst á forlotu háskólagáttar.

Skráning á nýnemadaginn fer fram á bifrost.is/nynemadagar. Hlökkum til að sjá þig!

Nýnemadagar grunn- og meistaranema fara svo fram föstudaginn 16. ágúst nk.

Hvers vegna að velja Bifröst?

  1. Í fararbroddi í fjarnámi
  2. Allt námsefni aðgengilegt á netinu þegar þér hentar
  3. Skólinn kemur til þín og mætir þínum þörfum
  4. Sterk tengsl við atvinnulífið
  5. Persónuleg þjónusta