Vistkerfi gervigreindar

Vistkerfi gervigreindar

Markmiðið með námskeiðinu er að veita nemendum innsýn inn í helstu atriði gervigreindar og hvernig hún er notuð í viðskiptalegu samhengi. Farið verður í gegnum sögu og þróun gervigreindar og hvaða áhrif hún hefur haft á viðskipti. Gert verður grein fyrir helstu forritum gervigreindar, svo sem „experts systems“ og „deep learning frameworks“, og hugsanleg áhrif hennar á viðskipti framtíðarinnar. Í námskeiðinu verður lögð rík áhersla á verkefnavinnu.

Sjá nánar í kennsluskrá

Fyrir hverja, þátttökugjald, forkröfur og einingar

Námskeiðið er fyrir þá sem vilja auka færni sína í að meta og velja rétta gervigreindarferla fyrir viðskiptafræðileg viðfangsefni.

Þátttökugjald er 75.000 kr 

Gerð er krafa um að hafa lokið stúdentsprófi eða sambærilegri menntun, t.d. úr Háskólagátt Háskólans á Bifröst

Námskeiðið veitir 6 ECTS einingar á grunnnámsstigi.

Fyrirkomulag

Námskeiðið er kennt í lotubundnu fjarnámi. Námskeiðið stendur yfir í sjö vikur og nemendur mæta í eina vinnustofu á Bifröst. Kennsla hefst 24. febrúar 2025 og stendur til 12. apríl. Um fjögurra stunda staðlota verður í Borgarnesi á tímabilinu 13.-16. mars, en nánari tímasetning er kynnt í námskeiðinu. Námsmat fer fram dagana 6.-12. apríl.

Þátttakendur taka námskeiðið ásamt nemendum í grunnnámi Háskólans á Bifröst. Þátttakendur geta búist við að verja um 25-30 klukkustundum á viku í vinnu við námskeiðið.     

Kennari

Kennari námskeiðsins er Hanna Kristín Skaftadóttir.

Styrkir

Mörg stéttarfélög bjóða upp á styrki vegna námskeiða. Kannaðu málið hjá þínu stéttarfélagi.

Umsóknarfrestur og skráning

Umsóknarfrestur er til 23. febrúar 2025.

Vinsamlegast láttu fylgja gögn í viðhengi sem sýna að þú uppfyllir aðgangsviðmið. 

Allar nánari upplýsingar eru veittar á netfanginu endurmenntun@bifrost.is.

Hér má sjá nánari upplýsingar um Endurmenntun til eininga við Háskólann á Bifröst

 

Skráning


Skrá mig

Smelltu á hnappinn til að sæka um námskeið í Endurmenntun Háskólans á Bifröst.

 

Svona skráir þú þig á námskeið:

  1. Fylla þarf út umsóknareyðublað í umsóknargáttinni.
  2. Ef þú skráir þig í námskeið með aðgangsviðmið, þarftu að bíða eftir að samþykki berist með tölvupósti.
  3. Til að ljúka við skráningu þarf að ganga frá greiðslu í umsóknargátt og sækja um notendanafn fyrir innra kennslukerfi Háskólans á Bifröst, Uglu https://ugla.bifrost.is. Þar birtast allar upplýsingar um námskeiðið.

Nánari upplýsingar eru veittar á endurmenntun@bifrost.is eða í síma 433 3000.