Orkumálaréttur

Orkumálaréttur

Í námskeiðinu verður fjallað um stjórnskipulega stöðu auðlinda og almenn sjónarmið um eignarráð yfir auðlindum og takmarkanir á þeim, forræði ríkja yfir auðlindum sínum og eignarhald, og rétt þjóða til að njóta auðlinda sinna. Fjallað verður um auðlindir á landi, í jörðu og í hafi. Farið ferður yfir lagaumhverfi nýtingar á auðlindum og áhrif EES samningsins á íslenskan auðlindarétt. Rætt verður um markaðsumhverfi auðlindamála og áhrif umhverfis- og skipulagsstefnu á orkunýtingu á Íslandi. 

Sjá kennsluskrá hér. 

Fyrir hverja, þátttökugjald, aðgangsviðmið og einingar

Námskeiðið er fyrir þá sem vilja auka skilning sinn á lagaumhverfi vegna nýntinga á auðlindum

Þátttökugjald er 75.000 kr 

Þátttakendur þurfa að hafa lokið grunnnámi á háskólastigi

Námskeiðið veitir 6 ECTS einingar á meistarastigi.

Fyrirkomulag

Námskeiðið er kennt í lotubundnu fjarnámi. Námskeiðið stendur yfir í sjö vikur og nemendur mæta í eina vinnustofu í Borgarnesi. Kennsla hefst 24. febrúar 2025 og stendur til 12. apríl 2025. Staðlota verður á tímabilinu 20.-23. mars í Borgarnesi, en nánari tímasetning er kynnt í námskeiðinu. Námsmat fer fram dagana 6.-12. apríl.

Þátttakendur taka námskeiðið ásamt nemendum í grunnnámi Háskólans á Bifröst. Þátttakendur geta búist við að verja um 25-30 klukkustundum á viku í vinnu við námskeiðið.     

Kennari

Kennari námskeiðsins er Hanna Björg Konráðsdóttir

Styrkir

Mörg stéttarfélög bjóða upp á styrki vegna námskeiða. Kannaðu málið hjá þínu stéttarfélagi.

Umsóknarfrestur og skráning

Umsóknarfrestur er til 23. febrúar 2025.

Vinsamlegast láttu fylgja gögn í viðhengi sem sýna að þú uppfyllir aðgangsviðmið. 

Allar nánari upplýsingar eru veittar á netfanginu endurmenntun@bifrost.is.

Hér má sjá nánari upplýsingar um Endurmenntun til eininga við Háskólann á Bifröst

 

Skráning


Skrá mig

Smelltu á hnappinn til að sæka um námskeið í Endurmenntun Háskólans á Bifröst.

 

Svona skráir þú þig á námskeið:

  1. Fylla þarf út umsóknareyðublað í umsóknargáttinni.
  2. Ef þú skráir þig í námskeið með aðgangsviðmið, þarftu að bíða eftir að samþykki berist með tölvupósti.
  3. Til að ljúka við skráningu þarf að ganga frá greiðslu í umsóknargátt og sækja um notendanafn fyrir innra kennslukerfi Háskólans á Bifröst, Uglu https://ugla.bifrost.is. Þar birtast allar upplýsingar um námskeiðið.

Nánari upplýsingar eru veittar á endurmenntun@bifrost.is eða í síma 433 3000.