Samanburðarstjórnmál

Samanburðarstjórnmál

Í þessu námskeiði eru borin saman stjórnkerfi ólíkra ríkja. Megináherslan er á Bretland, Bandaríkin, Þýskaland og Frakkland auk ríkja Norðurlanda. Fjallað er um muninn á flokkakerfum þessara ríkja auk þess sem mismunandi hefðir í stjórnmálum eru greindar. Aðferðafræði samanburðarstjórnmála er kynnt og kennd.

Sjá nánar í kennsluskrá

Fyrir hverja, þátttökugjald, forkröfur og einingar

Námskeiðið er fyrir þá sem vilja geta greint og útskýrt muninn á mismunandi stjórnkerfum með samanburðargreiningu.

Þátttökugjald er 75.000 kr 

Gerð er krafa um að hafa lokið stúdentsprófi eða sambærilegri menntun, t.d. úr Háskólagátt Háskólans á Bifröst

Námskeiðið veitir 6 ECTS einingar á grunnnámsstigi.

Fyrirkomulag

Námskeiðið er kennt í lotubundnu fjarnámi. Námskeiðið stendur yfir í sjö vikur og nemendur mæta í eina lengri rafræna vinnustofu. Kennsla hefst 6. janúar 2025 og stendur til 14. febrúar. Staðlota verður haldin á tímabilinu 23.-26. janúar en nánari tímasetning er kynnt í námskeiðinu. Námsmat fer fram dagana 17.-21. febrúar 2024.

Þátttakendur taka námskeiðið ásamt nemendum í grunnnámi Háskólans á Bifröst.   

Kennari

Kennarar námskeiðsins er Magnús Skjöld

Styrkir

Mörg stéttarfélög bjóða upp á styrki vegna námskeiða. Kannaðu málið hjá þínu stéttarfélagi.

Umsóknarfrestur og skráning

Umsóknarfrestur er til 6. janúar 2025.

Vinsamlegast láttu fylgja gögn í viðhengi sem sýna að þú uppfyllir aðgangsviðmið. 

Allar nánari upplýsingar eru veittar á netfanginu endurmenntun@bifrost.is.

Hér má sjá nánari upplýsingar um Endurmenntun til eininga við Háskólann á Bifröst

 

Skráning


Skrá mig

Smelltu á hnappinn til að sæka um námskeið í Endurmenntun Háskólans á Bifröst.

 

Svona skráir þú þig á námskeið:

  1. Fylla þarf út umsóknareyðublað í umsóknargáttinni.
  2. Ef þú skráir þig í námskeið með aðgangsviðmið, þarftu að bíða eftir að samþykki berist með tölvupósti.
  3. Til að ljúka við skráningu þarf að ganga frá greiðslu í umsóknargátt og sækja um notendanafn fyrir innra kennslukerfi Háskólans á Bifröst, Uglu https://ugla.bifrost.is. Þar birtast allar upplýsingar um námskeiðið.

Nánari upplýsingar eru veittar á endurmenntun@bifrost.is eða í síma 433 3000.