Opinber stjórnsýsla: Opinber vinnuréttur og mannauðsstjórnun
Í námskeiðinu fjallað um vinnurétt og aðferðir og kenningar mannauðsstjórnunar með hliðsjón af opinberum rekstri. Í námskeiðinu er farið yfir skipulag og aðila vinnumarkaðarins. Er m.a. fjallað um starfsemi stéttarfélaga, félagafrelsi, kjarasamninga og ágreining á vinnumarkaði.
Í námskeiðinu er jafnframt fjallað um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna, meðal annars upphaf starfs og reglur er varða orlof, lífeyri og ráðningaslit, þar með talið áminningarferli. Í þessu námskeiði er jafnframt fjallað um helstu lykilatriði mannauðsstjórnunar. Meðal annars verður fjallað um starfsánægju, starfsmannaval, frammistöðumat, starfsmannasamtöl og þjálfun starfsfólks. Sérstök áhersla verður lögð á tengingu við leiðtogafræði og hlutverk leiðtogans í mannauðsstjórnun. Einnig verður fjallað um gildi símenntunar samhliða starfi og rætt um vinnustaðinn sem mikilvægan vettvang náms og þjálfunar. Fjallað verður um breytingar á vinnustað út frá aðferðafræði og kenningum breytingastjórnunar.
Fyrir hverja, þátttökugjald, forkröfur og einingar
Námskeiðið er fyrir þá sem vilja vera færir um að kynna starfsmannastefnu og útskýra hvernig hún verður leidd áfram innan stofnunar ásamt því að vera hæfir til að taka þátt í breytingum og umbótaverkefnum á vinnustað.
Þátttökugjald er 75.000 kr.
Gerð er krafa um að hafa lokið stúdentsprófi eða sambærilegri menntun, t.d. úr Háskólagátt Háskólans á Bifröst
Námskeiðið veitir 6 ECTS einingar á grunnnámsstigi.
Fyrirkomulag
Námskeiðið er kennt í lotubundnu fjarnámi. Námskeiðið stendur yfir í sjö vikur og nemendur mæta í eina lengri rafræna vinnustofu. Kennsla hefst 6. janúar 2025 og stendur til 14. febrúar. Staðlota verður haldin á tímabilinu 23.-26. janúar en nánari tímasetning er kynnt í námskeiðinu. Námsmat fer fram dagana 17.-21. febrúar 2025.
Þátttakendur taka námskeiðið ásamt nemendum í grunnnámi Háskólans á Bifröst. Þátttakendur geta búist við að verja um 25-30 klukkustundum á viku í vinnu við námskeiðið.
Kennari
Kennarar námskeiðsins er Elín Blöndal
Styrkir
Mörg stéttarfélög bjóða upp á styrki vegna námskeiða. Kannaðu málið hjá þínu stéttarfélagi.
Umsóknarfrestur og skráning
Umsóknarfrestur er til 6. janúar 2025.
Vinsamlegast láttu fylgja gögn í viðhengi sem sýna að þú uppfyllir aðgangsviðmið.
Allar nánari upplýsingar eru veittar á netfanginu endurmenntun@bifrost.is.
Hér má sjá nánari upplýsingar um Endurmenntun til eininga við Háskólann á Bifröst
Skráning
Skrá mig
Smelltu á hnappinn til að sæka um námskeið í Endurmenntun Háskólans á Bifröst.
Svona skráir þú þig á námskeið:
- Fylla þarf út umsóknareyðublað í umsóknargáttinni.
- Ef þú skráir þig í námskeið með aðgangsviðmið, þarftu að bíða eftir að samþykki berist með tölvupósti.
- Til að ljúka við skráningu þarf að ganga frá greiðslu í umsóknargátt og sækja um notendanafn fyrir innra kennslukerfi Háskólans á Bifröst, Uglu https://ugla.bifrost.is. Þar birtast allar upplýsingar um námskeiðið.
Nánari upplýsingar eru veittar á endurmenntun@bifrost.is eða í síma 433 3000.