Lagaumhverfi almannavarna og þjóðaröryggis
Í námskeiðinu er fjallað um ýmis atriði sem snerta lagaumhverfið um almannavarnir og þjóðaröryggi hérlendis. Þar að auki eru helstu alþjóðasamningar og -stofnanir sem sýsla með málaflokkinn kynntar til sögunnar. Í námskeiðinu verður sérstaklega fjallað um löggjöfina um Almannavarnir og Þjóðaröryggisráð. Auk þess verður fjallað um ýmsar aðrar réttarheimildir í þessu samhengi. Stofnanauppbygging málaflokksins verður krufin til mergjar auk þess sem ýmis álitaefni verða tekin til umfjöllunar, t.d. valdheimildir ríkisins til skerðingar mannréttinda á hættutímum, stjórnskipulegur neyðarréttur, valdheimildir lögreglunnar í þjóðaröryggismálum, hlutverk Landhelgisgæslunnar, hugtökin almannavarnarstig og hættustund, borgaralegar skyldur á hættustundu og margt fleira. Markmið námskeiðsins er að nemendur öðlist þekkingu á lagaumhverfinu sem gildir um almannavarnir og þjóðaröryggi hérlendis og geti beitt því á raunveruleg viðfangsefni.
Fyrir hverja, þátttökugjald og einingar
Námskeiðið er fyrir þá sem vilja öðlast þekkingu á lagaumhverfinu sem gildir um almannavarnir og þjóðaröryggi hérlendis.
Þátttökugjald er 75.000 kr.
Námskeiðið veitir 6 ECTS einingar á grunnnámsstigi.
Gerð er krafa um stúdentspróf eða sambærilega menntun, t.d. úr Háskólagátt Háskólans á Bifröst.
Fyrirkomulag
Námskeiðið er kennt í fjarnámi. Námskeiðið stendur yfir í sjö vikur. Kennsla hefst 6. janúar 2025 og stendur til 14. febrúar 2025. Námsmat fer fram dagana 17.-21. febrúar 2025. Staðlota er 23. - 26. janúar.
Kennari
Kennari námskeiðsins er Bjarni Már Magnússon
Styrkir
Mörg stéttarfélög bjóða upp á styrki vegna námskeiða. Kannaðu málið hjá þínu stéttarfélagi.
Umsóknarfrestur og skráning
Umsóknarfrestur er til 6. janúar 2025.
Allar nánari upplýsingar eru veittar á netfanginu endurmenntun@bifrost.is
Hér má sjá nánari upplýsingar um Endurmenntun til eininga við Háskólann á Bifröst
Skráning
Skrá mig
Smelltu á hnappinn til að sæka um námskeið í Endurmenntun Háskólans á Bifröst.
Svona skráir þú þig á námskeið:
- Fylla þarf út umsóknareyðublað í umsóknargáttinni.
- Ef þú skráir þig í námskeið með aðgangsviðmið, þarftu að bíða eftir að samþykki berist með tölvupósti.
- Til að ljúka við skráningu þarf að ganga frá greiðslu í umsóknargátt og sækja um notendanafn fyrir innra kennslukerfi Háskólans á Bifröst, Uglu https://ugla.bifrost.is. Þar birtast allar upplýsingar um námskeiðið.
Nánari upplýsingar eru veittar á endurmenntun@bifrost.is eða í síma 433 3000.