Einkamálaréttarfar
Á námskeiðinu verður fjallað um réttarreglur er varða dómstólaskipan og meðferð einkamála. Áhersla verður lögð á meginreglur einkamálaréttarfars, hlutverk og skipan dómstóla, dómendur, lögsögu dómstóla, aðild, sakarefni, stefnur og greinargerðir (þ.á m. kröfugerðir). Farið verður yfir reglur um málsmeðferð í einkamálum almennt, sönnunarfærslu fyrir dómi og fjallað um úrlausnir dómstóla. Nokkuð verður fjallað sérdómstóla og um málskot til Hæstaréttar.
Fyrir hverja, þátttökugjald, umsóknir, forkröfur og einingar
Námskeiðið hentar þeim sem vilja auka þekkingu sína á réttarreglum er varða dómstólaskipan og meðferð einkamála.
Þátttökugjald er 75.000 kr.
Gerð er krafa um að hafa lokið háskólanámi á grunnnámsstigi.
Námskeiðið veitir 12 ECTS einingar á meistarastigi.
Fyrirkomulag
Námskeiðið er kennt í fjarnámi. Námskeiðið stendur yfir í fjórtán vikur. Kennsla hefst 6. janúar 2025 og stendur til 4. apríl 2025. Námsmat fer fram dagana 6.-12. apríl 2025.
Kennarar
Kennarar námskeiðsins eru Björg Valgeirsdóttir og Samúel Gunnarsson.
Styrkir
Mörg stéttarfélög bjóða upp á styrki vegna námskeiða. Kannaðu málið hjá þínu stéttarfélagi.
Umsóknarfrestur og skráning
Umsóknarfrestur er til 6. janúar 2025.
Vinsamlegast láttu fylgja gögn í viðhengi sem sýna að þú uppfyllir aðgangsviðmið.
Allar nánari upplýsingar eru veittar á netfanginu endurmenntun@bifrost.is.
Hér má sjá nánari upplýsingar um Endurmenntun til eininga við Háskólann á Bifröst
Skráning
Skrá mig
Smelltu á hnappinn til að sæka um námskeið í Endurmenntun Háskólans á Bifröst.
Svona skráir þú þig á námskeið:
- Fylla þarf út umsóknareyðublað í umsóknargáttinni.
- Ef þú skráir þig í námskeið með aðgangsviðmið, þarftu að bíða eftir að samþykki berist með tölvupósti.
- Til að ljúka við skráningu þarf að ganga frá greiðslu í umsóknargátt og sækja um notendanafn fyrir innra kennslukerfi Háskólans á Bifröst, Uglu https://ugla.bifrost.is. Þar birtast allar upplýsingar um námskeiðið.
Nánari upplýsingar eru veittar á endurmenntun@bifrost.is eða í síma 433 3000.