Eigna- og veðréttur

Eigna- og veðréttur

Í þessu námskeiði verða kenndar þær réttarreglur fjármunaréttarins sem falla undir svokallaðan eigna- og veðrétt. Farið verður yfir grundvallaratriði í eignarétti með áherslu á svonefndan hlutarétt og þá einkum fasteignir. Tengslin milli opinbers réttar og einkaréttar verða rædd. M.a. verður farið yfir eignaréttarhugtakið og flokkun eignarréttinda, stofnun og slit eignarréttinda, fasteignir, flokkun þeirra og landamerki, inntak, vernd og takmörk eignarréttarins auk þinglýsinga og helstu reglur um þjóðlendur. Þá verður fjallað um takmörkuð eignarréttindi með sérstakri áherslu á veðrétt. Í veðréttinum verður höfuðáherslan lögð á reglur um samningsveð, sbr. lög nr. 75/1997.

Sjá kennsluskrá hér. 

Fyrir hverja, þátttökugjald og einingar

Námskeiðið er fyrir þá sem vilja kynna sér þær réttarreglur fjármunaréttarins sem falla undir eigna- og veðrétt. Farið verður yfir grundvallaratriði í eignarétti með áherslu á hlutarétt og þá einkum fasteignir.

Þátttökugjald er 75.000 kr. 

Námskeiðið veitir 6 ECTS einingar á grunnnámsstigi. 

Gerð er krafa um stúdentspróf eða sambærilega menntun, t.d. úr Háskólagátt Háskólans á Bifröst.

Fyrirkomulag

Námskeiðið er kennt í fjarnámi. Námskeiðið stendur yfir í sjö vikur. Kennsla hefst 6. janúar 2025 og stendur til 14. febrúar 2025. Námsmat fer fram dagana 17.-21. febrúar 2025. Staðlota er 23. - 26. janúar.

Kennari

Kennari námskeiðsins er Fróði Steingrímsson 

Styrkir

Mörg stéttarfélög bjóða upp á styrki vegna námskeiða. Kannaðu málið hjá þínu stéttarfélagi.

Umsóknarfrestur og skráning

Umsóknarfrestur er til 6. janúar 2025. 

Allar nánari upplýsingar eru veittar á netfanginu endurmenntun@bifrost.is

Hér má sjá nánari upplýsingar um Endurmenntun til eininga við Háskólann á Bifröst

 

Skráning


Skrá mig

Smelltu á hnappinn til að sæka um námskeið í Endurmenntun Háskólans á Bifröst.

 

Svona skráir þú þig á námskeið:

  1. Fylla þarf út umsóknareyðublað í umsóknargáttinni.
  2. Ef þú skráir þig í námskeið með aðgangsviðmið, þarftu að bíða eftir að samþykki berist með tölvupósti.
  3. Til að ljúka við skráningu þarf að ganga frá greiðslu í umsóknargátt og sækja um notendanafn fyrir innra kennslukerfi Háskólans á Bifröst, Uglu https://ugla.bifrost.is. Þar birtast allar upplýsingar um námskeiðið.

Nánari upplýsingar eru veittar á endurmenntun@bifrost.is eða í síma 433 3000.