Ákvörðunarfræði

Ákvörðunarfræði

Markmiðið með námskeiðinu er að veita nemendum innsýn inn í helstu atriði ákvörðunartökufræða og notagildi þeirra við ákvörðunartöku í viðskiptalífinu. Farið verður yfir helstu atriði í ákvörðunartökulíkönum og kenningar á bakvið þau. Skoðað er nánar uppbygging gagnadrifinnar ákvörðunartöku og hvernig greining gagna kemur inn á mismunandi ákvörðunartökufræði. Í námskeiðinu verður lögð rík áhersla á verkefnavinnu.

Fyrir hverja, þátttökugjald, forkröfur og einingar

Námskeiðið er fyrir þá sem vilja auka færni sína til þess að velja réttan ákvörðunartökubúnað fyrir hin ýmsu verkefni innan viðskiptafræðinnar.

Þátttökugjald er 75.000 kr 

Gerð er krafa um að hafa lokið stúdentsprófi eða sambærilegri menntun, t.d. úr Háskólagátt Háskólans á Bifröst

Námskeiðið veitir 6 ECTS einingar á grunnnámsstigi.

Umsóknarfrestur er til 6. janúar 2025.

Fyrirkomulag

Námskeiðið er kennt í lotubundnu fjarnámi. Námskeiðið stendur yfir í sjö vikur. Kennsla hefst 6. janúar 2025 og stendur til 14. febrúar 2025. Ein fjögurra stunda staðlota verður haldin í Borgarnesi á tímabilinu 23.-26. janúar 2025 en nánari tímasetning er kynnt í námskeiðinu. Námsmat fer fram dagana 17.-21. febrúar 2025.  

Kennari

Kennari námskeiðsins er Hanna Kristín Skaftadóttir og Kári Joensen.

Styrkir

Mörg stéttarfélög bjóða upp á styrki vegna námskeiða. Kannaðu málið hjá þínu stéttarfélagi.

Umsóknarfrestur og skráning

Umsóknarfrestur er til 6. janúar 2025.

Vinsamlegast láttu fylgja gögn í viðhengi sem sýna að þú uppfyllir aðgangsviðmið. 

Allar nánari upplýsingar eru veittar á netfanginu endurmenntun@bifrost.is.

 

Skráning


Skrá mig

Smelltu á hnappinn til að sæka um námskeið í Endurmenntun Háskólans á Bifröst.

 

Svona skráir þú þig á námskeið:

  1. Fylla þarf út umsóknareyðublað í umsóknargáttinni.
  2. Ef þú skráir þig í námskeið með aðgangsviðmið, þarftu að bíða eftir að samþykki berist með tölvupósti.
  3. Til að ljúka við skráningu þarf að ganga frá greiðslu í umsóknargátt og sækja um notendanafn fyrir innra kennslukerfi Háskólans á Bifröst, Uglu https://ugla.bifrost.is. Þar birtast allar upplýsingar um námskeiðið.

Nánari upplýsingar eru veittar á endurmenntun@bifrost.is eða í síma 433 3000.