Alþjóðaskrifstofa

 

Alþjóðaskrifstofa Háskólans á Bifröst

 

Á Bifröst er mikil áhersla lögð á alþjóðleika og samstarf við erlenda háskóla. Undanfarin ár hefur um 50% nemenda farið ár hvert í skiptinám erlendis í eina eða tvær annir.

 

Nemendum býðst að fara og stunda nám í einum af samstarfsskólum Bifrastar erlendis og er námið metið inn í grunnnám viðkomandi svo ekki glatist mikilvægur tími úr náminu. Skiptinám er góður undirbúningur fyrir nám og störf í alþjóðlegur umhverfi og um leið fá nemendur tækifæri til að kynnast annarri menningu, öðlast mikilvæga reynslu og víkka sjóndeildarhringinn. Að sama skapi kemur hópur erlendra skiptinema og dvelur á Bifröst ár hvert. Hér er listi yfir samstarfsskóla Háskólans á Bifröst.

 

Háskólinn er aðili að Erasmus-samstarfi evrópskra háskóla og er einnig með marga tvíhliða samninga við sérvalda háskóla utan Evrópu. Bifröst er meðlimur í "University of the Arctic" sem er samstarf nokkurra háskóla í Kanada, Bandaríkjunum, Grænlandi, Íslandi, Noregi, Svíþjóð, Finnlandi og Rússlandi. Bifröst tekur einnig þátt í "north2north" skiptinemasamstarfi á vegum UArtic.

 

 

 

 

Alþjóðafulltrúi Háskólans á Bifröst

 

Brynjar Þór Þorsteinsson

Alþjóðafulltrúi/

Director of international relations

_____________________________

 

Netfang/Email: international@bifrost.is

Sími / Tel:  +354 4333000

Fax: +354 433 3001

 

 

 

Almennar fyrirspurnir: international@bifrost.is

Outgoing students: outgoing@bifrost.is  

 

Erasmus code fyrir Háskólann á Bifröst er: IS BORGARN 01

 

 

Hér má finna tengla yfir gagnlegar upplýsingar:

Alþjóðaskrifstofa háskólastigsins

Útlendingastofnun

  

 

Umsóknareyðublöð:

Forumsókn fyrir skiptinám 

(Umsóknarfrestur vegna haustannar er 1. mars og vorannar 1. október)

Learning Agreement fyrir skiptinám (Kúrsaval)

Umsókn um Erasmus styrk

(Umsóknarfrestur vegna haustannar 1. mars og vorannar 1. október)

Lokaskýrsla vegna Erasmus styrks

 

 

Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri