Hvað með evruna?

 

Hvað með evruna?  

Smellið á bókarkápuna til að nálgast pdf skjal með texta bókarinnar (4.05MB)


Evrópufræðasetur Háskólans á Bifröst hefur gefið út bókina Hvað með evruna?, eftir Eirík Bergmann Einarsson, dósent í stjórnmálafræði, og Jón Þór Sturluson, dósent í hagfræði. Bókin er afrakstur tveggja ára rannsóknar sem gerð var að ósk Alþýðusambands Íslands og Samtaka iðnaðarins. Í bókinni eru helstu álitamál varðandi hugsanlega innleiðingu evru á Íslandi greind á einfaldan og aðgengilegan hátt. Fjallað er um myntsamruna í Evrópu og skoðað hvaða áhrif innganga í Evrópusambandið og upptaka evru hefðu á íslenskt efnahagslíf og samfélag.

 

Summary in English

 

Helstu niðurstöður


Ísland hefur aðeins tvo raunhæfa kosti í peningamálum. Annað hvort að viðhalda núverandi stefnu með sjálfstæðri krónu á floti eða að ganga í Efnahags- og myntbandalag Evrópu og taka upp evru. Ef ríki hefur á annað borð kost á fullri aðild að myntbandalagi Evrópu er vandséð hvaða hag það hefur af því að taka evruna upp einhliða. Líkast til mun taka alls fjögur ár að semja um aðild að ESB og innleiða evru á Íslandi að því loknu. Evran er því langtímamál og mun ekki duga sem lausn á skammtímavanda í íslensku efnahagslífi.


 

Í þessari bók er fjallað um hvaða áhrif innleiðing evru myndi hafa fyrir íslenskt efnahagslíf og samfélag. Stutta svarið er nokkuð skýrt: Í fyrsta lagi verður hagkerfið stöðugra, vextir lægri og viðskiptakostnaður minni. Þá má gera ráð fyrir að viðskipti aukist þegar gengisáhætta minnkar. Verðlag ætti að lækka og kaupmáttur að aukast. Helsti ókosturinn er á móti sá að Seðlabanki Íslands missir úr eigin hendi ákvörðun um innlenda stýrivexti. Við upptöku evru verður heldur ekki hægt að lækka raunlaun með því að fella gengið sem getur valdið ákveðnum erfiðleikum á vinnumarkaði. Þótt meginlínurnar séu nokkuð ljósar eru eigi að síður fjöldamörg álitaefni sem ítarlega eru rædd í bókinni.
 

Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri