Stjórnsýsla og skipulag

Háskólinn á Bifröst er sjálfseignarstofnun. Stjórn skólans, sem hefur yfirumsjón og eftirlit með öllum málefnum hans er skipuð fulltrúum Borgarbyggðar, Háskólaráðs Háskólans á Bifröst, Hollvinasamtaka Bifrastar, Sambands íslenskra samvinnufélaga svf., og Samtaka atvinnulífsins. Sömu aðilar skipa fimmtán manna fulltrúaráð sem fundar einu sinni á ári og hefur æðsta vald í málefnum skólans.

 

Háskólastjórn ræður rektor til starfa og ákvarðar um starf hans. Hún setur skólanum reglugerð og gerir breytingar á henni, afgreiðir rekstraráætlun og ársreikning skólans og lætur gera ráðstafanir til að tryggja nauðsynlegt rekstrarfé.

 

Rektor ber ábyrgð á daglegri stjórn skólans. Hann situr fundi háskólastjórnar með málfrelsi og tillögurétti. Rektor kemur fram fyrir hönd skólans gagnvart starfsmönnum og nemendum og út á við. Rektor ber ábyrgð á því gagnvart stjórn að starfsemi skólans sé í samræmi við skipulagsskrá hans og reglugerð.

 

Háskólaráð er æðsta vald í innri málum háskólasamfélagsins. Rektor er formaður þess. Fagráð hefur umsjón með akademísku starfi skólans undir stjórn aðstoðarrektors.

 

Skipurit Háskólans á Bifröst

 

Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri