Fréttir
12. mars 2010

Ásta Dís Óladóttir ,,Erum að falla á tíma "

Ásta Dís Óladóttir, forseti viðskiptadeildar Háskólans á Bifröst flutti erindi á aðalfundi Samtaka verslunar og þjónustu í gær þar sem hún ræddi um mikilvægi verslunar og þjónustu fyrir hagkerfið.

Ásta Dís fjallaði um augljóst mikilvægi verslunar og þjónustu fyrir hagkerfið sem sjá mætti best á því að 73% vinnuafls á Íslandi starfar innan vébanda verslunar og þjónustu.  En sökum mikilvægi þessarar atvinnugreinar fyrir hagkerfið þyrfti að efla enn frekar rannsóknir sem skiptu máli fyrir atvinnugreinina.

 

 

Lítt örvandi umhverfi

,,Það umhverfi sem við okkur blasir í dag er ekki beint uppörvandi og það er lítið hvetjandi.  Það umhverfi sem við búum við í dag virkar eins og öfugur spírall á atvinnulíf á Íslandi.  Við sjáum samdrátt í einkaneyslu, hækkanir á vöruverði, samdrátt í sölu, lágt gengi krónunnar, samdrátt í kaupmætti, vaxtahækkanir og síðast en ekki síst, væntingar almennings og atvinnulífs eru ekki miklar“

 

Neysluvöxtur gæti orðið í kringum 4%

Þá fjallaði Ásta Dís um að neysla myndi væntanlega hætta að dragast saman eftir mikinn samdrátt að undanförnu.  ,,Væntanlega munum við þó sjá ákveðið bakslag í upphafi árs enda vega nýjar skattahækkanir ríkisins á bæði tekjur og vörur þungt í ráðstöfunartekjum heimila á sama tíma og áðurnefndar væntingar eru ekki miklar, en þetta eru þeir þættir sem munu halda neyslunni í skefjum fyrst um sinn.  Því gæti farið svo að raunvirði samdráttar á árunum 2008-2010 gæti orðið allt að 25% að raunvirði“

Ef heldur sem horfir og atvinnuleysi verður áfram mikið á árunum 2011-2012 og ef gengið verður áfram veikt, má gera ráð fyrir að neysluvöxturinn á næstu 2 árum verði í kringum 4%“

 

 

Þættir sem helst halda einkaneyslu í skefjum

Segja má að neikvæður kaupmáttur, skattahækkanir ríkisins, atvinnuleysi og þétt vaxtaaðhald Seðlabankans vegna óvissu í lánveitingum  munu helst halda einkaneyslu í skefjum.   Eins sést breytt neysluhegðun almennings en sparnaðarhneigð meðal heimila og þar með minni neysla mun koma fram á þessu ári og næstu árum.  Væntingar almennings eru ekki miklar og svartsýni og óvissa ríkir hjá heimilum í landinu en slíkt dregur úr kaupgleði neytenda og þar með einkaneyslunni.

 

Vítahringur verslana og þjónustufyrirtækja

Samdráttur, skortur á almennri stefnumótun og framtíðarsýn og almennt aðgerðaleysi geta leitt til þess að verslunar- og þjónustufyrirtæki geta lent í ákveðnum vítahring. Fyrirtæki þurfa öll sem eitt að ráðast í mikla naflaskoðun og finna þau tækifæri sem liggja á hverju sviði fyrir sig og þetta er hlutverk fyrirtækjanna sjálfra.  Það eru tækifæri í verslun og þjónustu og eini þátturinn sem getur takmarkað það að finna ný tækifæri er hugmyndaflug þeirra sem standa á bak við fyrirtækin.  Það þarf að brjótast út úr location hugsuninni sem er í verslun og hugsa hlutina á nýjan og ferskan hátt.  Ný kynslóð neytenda lítur hlutina öðrum augum en fyrri kynslóðir.  Þetta er mjög tæknivædd kynslóð sem mun vilja minni og sérhæfðari búðir þegar hún á annað borð fer og verslar, en umfram allt þægindi.  ,,Bigger is better“ er hugtak sem virðist ekki höfða til þessarar kynslóðar samkvæmt erlendum rannsóknum.  Þess vegna þarf að upphugsa nýjar leiðir.

 

Aðgerðaráætlunar er þörf

Nú þarf að hugsa hlutina upp á nýtt.  Ráðast í stefnumótun og gera markvissar aðgerðaáætlanir.  Til þess að fá hjólin til þess að snúast þarf að gera eftirfarandi á  næstu 20 mánuðum eða til loka ársins 2011.

 

  1. Ljúka Icesave-samningum innan 1 mánaðar
  2. Lækka vexti innan 1 mánaðar
  3. Ljúka endurskoðun hjá AGS innan 2 mánaða
  4. Hraða vinnu sérstaks saksóknara innan 6 mánaða
  5. Ráðast í þær orkufreku framkvæmdir sem eru á teikniborðinu innan 20 mánaða
  6. Standa við stöðugleikasáttmálann innan 6 mánaða
  7. Leysa skuldavanda heimilanna innan 6 mánaða
  8. Aflétta gjaldeyrishöftum að hálfu innan 9 mánaða og afnema öll höftin innan 20 mánaða
  9. Koma fyrirtækjum úr eigu skilanefnda og banka eftir endurskipulagningu innan 20 mánaða
  10. Standa við fjárlögin 2010 og 2011

 

Eins og sést á þessu er að fjölmörgu að hyggja en áherslan er á tímaþáttinn, það má engan tíma missa.  Til þess að fá atvinnulífið af stað aftur þurfa stjórnvöld og atvinnulíf að spila saman.
 

 

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri