Fréttir
17. febrúar 2010

HÁSKÓLADAGURINN - LAUGARDAGINN 20. FEBRÚAR KL. 11.00-16.00

 

Allir háskólar landsins kynna námsframboð sitt í Ráðhúsi Reykjavíkur og í Háskóla Íslands en um 500 námsleiðir er að ræða. Einnig er kynning á framhaldsnámi í Danmörku og Svíðþjóð í Norræna húsinu.

 

Laugardaginn 20. febrúar kynna háskólar landsins námsframboð sitt fyrir næsta skólaár. Kynningin fer fram á tveimur stöðum í borginni. Í  Ráðhúsi Reykjavíkur verða Háskólinn á Akureyri, Háskólinn á Bifröst, Háskólinn á Hólum, Háskólinn í Reykjavík, Landbúnaðarháskóli Íslands og Listaháskóli Íslands. Háskóli Íslands kynnir sitt nám í Háskólanum; á Háskólatorgi, í Gimli og Odda. Einnig er á sama tíma boðið upp á kynningu á framhaldsnámi í Danmörku og Svíþjóð  í Norræna húsinu.

 

 

Kennarar, nemendur og starfsfólk Háskólans á Bifröst kynnir námsframboð skólans í grunn- og meistaranámi.  Kíktu við í Ráðhúsinu, við tökum vel á móti þér.

 

sjá einnig á www.haskoladagurinn.is

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri