Fréttir
15. febrúar 2010

Máttur kvenna hefst með vinnuhelgi 26.-27. febrúar. Skráning stendur yfir

Máttur kvenna verður nú haldið í 11 sinn og hefst með vinnuhelgi á Bifröst dagana 26.-27. febrúar.
Á sama tíma hefst Máttur kvenna II en það er ætlað konum sem hafa lokið fyrra námskeiðinu og vilja bæta enn frekar við sig námi.
Máttur kvenna hefur notið mikilla vinsælda frá upphafi og það stefnir í góða þátttöku núna líka. Skráning fer fram á heimasíðu skólans og tekið verður við umsóknum fram til 20. febrúar.
 
Kennslan byggist upp á fyrirlestrum í fjarnámi og verkefnavinnu. Námsgreinarnar eru 5 og í hverri þeirra eru unnin 2-4 verkefni. Þátttakendur koma á vinnuhelgi á Bifröst í upphafi og lok námskeiðsins og þar er lögð áhersla á hópefli og nemendum m.a. kennt á námskjáinn.
Bakgrunnur þeirra sem sækja Mátt kvenna er mjög fjölbreyttur hvað aldur, starfsreynslu, búsetu og fyrra nám varðar.
 
Í útvarpsþættinum Sirrý á sunnudagsmorgnum þann 14. febrúar sl. var rætt við 2 konur sem hafa lokið Mætti kvenna og Geirlaugu Jóhannsdóttur, verkefnastjóra símenntunar við Háskólann á Bifröst. Útvarpsviðtalið má nálgast hér

 

Nánari upplýsingar um Mátt kvenna má lesa á vefnum:
http://www.bifrost.is/islenska/namsleidir/simenntun/mattur-kvenna-i/
 

 

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri