6. febrúar 2010
Ágúst Einarsson hættir sem rektor í sumar
Háskólinn á Bifröst útskrifaði í dag, laugardag, 63 nemendur, þar af 11 með meistarapróf. Í útskriftarræðu tilkynnti Ágúst Einarsson rektor að hann myndi láta af störfum 5. júní næstkomandi eða við næstu útskrift. Í ræðu Ágústs kom fram að ráðningartími hans hafi runnið út í ársbyrjun en stjórn skólans hafi beðið hann að starfa áfram og hafi hann orðið við því enda vildi hann ljúka fjárhagslegri endurskipulagningu i tengslum við nemendaíbúðir á Bifröst og því lauk á árangursríkan hátt núna í janúar.
Ágúst fór yfir þróun síðustu ára í ræðu sinni og þar kom m.a. eftirfarandi fram:
• Staða Háskólans á Bifröst er sterk og hagnaður var á síðasta ári. Fyrir 3 árum var fjárhagsstaðan mjög slæm en það tókst að snúa því við. Hrunið setti strik í málin en það tókst að vinna vel út því. Eigið fé skólans hefur aukist verulega undanfarin 3 ár.
• Gæði námsins hafa aukist og kröfur hertar bæði til nemenda og kennara, Fjölgað hefur um 2 námsleiðir í grunnámi og 2 námsleiðir í meistaranámi á síðustu 3 árum. Sterk staða skólans endurspeglast í aukinni aðsókn.
• Langflestir útskriftarnemar á Bifröst ljúka BS eða BA námi á 3 árum og stór hluti meistaranema á 2 árum og flestir á innan við 4 árum. Virkni nemenda er líklega hæst á Bifröst af öllum háskólum hérlendis, brottfall er lágt og kröfur við innritun miklar.
• Það sóttu 1.400 manns um skólavist í fyrra og hafa aldrei verið fleiri en um helmingur umsækjenda var innritaður. Nemendur hafa aldrei verið jafnmargir og núna eða 1.300 manns.
• Skólinn stendur vel og mun starfa sjálfstætt áfram en engar sameiningar við aðra háskóla eru á döfinni.
Ágúst sagði jafnframt að hann myndi vera áfram prófessor við Háskólann á Bifröst og einbeita sér að kennslu og rannsóknum. Andrés Magnússon formaður stjórnar færði Ágústi kærar þakkir fyrir ákaflega vel unnin störf og stjórnin mun nú huga að ráðningu nýs rektors en framtíð skólans er björt að mati Andrésar.
Ræðu rektors er hægt að sjá hér.