Fréttir
18. desember 2008

Rannsóknasetur í menningarfræðum

Rannsóknasetur í menningarfræðum við Háskólann á Bifröst er rekið í samvinnu við Íslensku óperuna og Félag íslenskra hljómlistarmanna.  Umsjón með setrinu hafa dr. Ágúst Einarsson rektor og Njörður Sigurjónsson dósent og forstöðumaður Rannsóknamiðstöðvar Háskólans á Bifröst.

Menningarstarfsemi er veigamikill þáttur í íslensku samfélagi og skilar verulegum efnahagslegum og andlegum verðmætum. Öðrum stofnunum, samtökum og fyrirtækjum á sviði menningarmála er heimil aðild að Rannsóknarsetri í menningarfræðum og  mun sérhver aðili eiga fulltrúa í fulltrúaráði þess.

Þörf er á margvíslegum rannsóknum á sviðum sem tengjast listgreinum og öðrum sviðum menningar til að varpa ljósi á og auka skilning á hlutverki þeirra í samfélaginu.  Við Háskólann á Bifröst hefur um nokkurra ára skeið verið boðið upp á MA nám í menningarstjórnun og hefur frá upphafi verið mikil eftirspurn eftir því .

 

Stofnaðilar Rannsóknaseturs í menningarfræðum skuldbinda sig til að leggja setrinu lið eftir föngum, með ráðgjöf, aðstoð, kennslu eða á annan hátt. Gert er ráð fyrir að rannsóknir setursins taki mið af íslenskum og erlendum aðstæðum og  að niðurstöður þeirra verði birtar á aðgengilegan hátt og verði grundvöllur umræðna um menningarmál í íslensku samfélagi.

 

Á vefsíðu Rannsóknaseturs í menningarfræðum , www.rsm.bifrost.is  er að finna ýmsar upplýsingar og lesefni er varða menningarfræði og skyldar greinar.

 

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri