Fréttir
15. desember 2008

Góð þátttaka í TTT starfinu

Kátir krakkar í TTT
Í haust hafa 15 börn mætt í TTT sem er kristilegt æskulýðsstarf á vegum þjóðkirkjunnar fyrir 10 – 12 ára börn.

Elínborg Sturludóttir, sóknarprestur í Stafholti og Alda Baldursdóttir, sviðsstjóri húsnæðis á Bifröst,  hafa leitt starfið.

Börnin hafa verið dugleg að mæta og hafa verið mjög áhugasöm. Hefðbundin dagskrá hefur byrjað með því að börnin merkja á mætingarspjald og fá ávexti, samverustundin hefst svo með stuttri bæn, það er sungið, hlustað á Biblíusögu, farið í leiki og föndrað og endað með sameiginlegri bæn.

Í upphafi var tilkynnt um að mætingarverðlaun væru í boði fyrir þá sem væru duglegir að koma og alls fengu 10 börn slík verðlaun að þessu sinni. Þau fengu í hendur krossa búna til úr notuðum byssukúlum.  Krossana gerðu börn sem eru í endurhæfingu á vegum lúterska heimssambandsins eftir að hafa verið hermenn og misnotuð í stríði í Sierra Lione.

Elínborg og Alda stefna á að hefja TTT starf aftur eftir áramótin í byrjun mars og stefnt er að því að mætingarverðlaun í vor verði ferðalag.

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri