2. desember 2008
Bryndís Hlöðversdóttir fjallar um þingeftirlit
Forseti Alþingis boðaði þann 1.desember til ráðstefnu um eftirlit löggjafarvaldsins með framkvæmdavaldinu. Meðal fyrirlesara var Bryndís Hlöðversdóttir, aðstoðarrektorog forseti lagadeildar Háskólans á Bifröst.
Í fyrirlestri Bryndísar kom fram að í nágrannalöndum okkar er tilteknum þingnefndum gjarnan falið frumkvæði að því að kanna ásakanir á hendur ráðherrum um brot í starfi og búa slík mál undir meðferð þingsins og ákvarðanatöku. Hér á landi hafi hins vegar engin þingnefnd slíkt hlutverk og virðist sem ríkisstjórnin eigi gjarnan frumkvæði að skipan slíkra nefnda þó stjórnarskráin geri ráð fyrir að það sé hlutverk þingsins.
Bryndís sagði æskilegt að skýrar reglur væru innan þingsins um það hvaða aðili ætti að skoða ásakanir á hendur ráðherrum og leggja til tiltekið verklag. Þá benti hún á að Alþingi hefur heimild í lögum til að skipa rannsóknarnefndir þingmanna en hefur lítið notað þá heimild. Einnig hafa verið skipaðar nefndir manna sem ekki eiga setu á þingi en starfsemi slíkra nefnda byggist á sérstökum lögum.
Bryndís er formaður vinnuhóps forsætisnefndar Alþingis um þingeftirlit.