Ávarp rektors

 


Ágæti lesandi!

 

Velkominn á heimasíðu Háskólans á Bifröst. Skólinn var stofnaður árið 1918 undir nafninu Samvinnuskólinn og var byggður á grunni þeirrar alþýðumenntunar sem var að ryðja sér til rúms í Evrópu í byrjun tuttugustu aldarinnar. Ruskin College í Oxford var fyrirmyndin en með stofnun hans var ætlunin að brjóta upp þá elítuhugsun sem tíðkast hafði í menntamálum í Bretlandi fram að því. Háskólinn á Bifröst hefur staðið vörð um þessa arfleifð sína með því að leggja áherslu á að efla félagsfærni nemenda sinna ekki síður en að auka fræðilega þekkingu þeirra.

 

Leiðtogar framtíðarinnar
Það er markmið okkar að mennta hæfa samfélagsþegna í víðtækum skilningi þess orðs og þannig leggjum við rækt við að styrkja nemendur til almennrar þjóðfélagsþátttöku, meðal annars með markvissri þjálfun í framsögu og framkomu. En leiðtogar dagsins í dag, hvort sem er í stjórnmálum eða viðskiptalífi standa frammi fyrir áskorunum á borð við alvarlega umhverfisvá og aðra neikvæða fylgifiska mannlegs atferlis eins og spillingu og slæma stjórnarhætti. Það er mikilvægt að leiðtogar framtíðarinnar taki á slíkum viðfangsefnum af ábyrgð og virðingu fyrir komandi kynslóðum en láti ekki skammtímasjónarmið ráða för. Háskólar gegna hér lykilhlutverki, þeir mennta forystufólk í viðskiptalífi, í stjórnmálum og í vísindum og eigi það markmið að takast að innleiða hugsun sjálfbærni og samfélagsábyrgðar inn í framtíðarstefnumótun, þá þurfa háskólarnir að vera í broddi þeirrar fylkingar. Háskólinn á Bifröst tekur þessu kalli tímans af alvöru og hefur nú gengist undir alþjóðlegt átak Sameinuðu þjóðanna til menntunar ábyrgra stjórnenda, fyrstur íslenskra háskóla. Nánar má sjá um þá stefnumótun á heimasíðu skólans; http://www.bifrost.is/islenska/um-haskolann/sjalfbaerni-og-samfelagsabyrgd/

 

Skólagjöldum varið til betri og persónulegri kennslu
Við kennsluna er áherslan á lausn verkefna í stað hins hefðbundna fyrirlestrarforms og drjúgur hluti námsins fer fram í verkefnatímum þar sem nemendur glíma við verkefni í litlum hópum og hafa því betri aðgang að kennurum en í stærri fyrirlestrum. Nemendur greiða skólagjöld sem varið er til betri þjónustu við nemendur, einkum í formi persónulegri kennslu í smærri hópum og tíðari verkefnavinnu sem tengist raunverulegum viðfangsefnum úr atvinnulífinu. Við leggjum mikið upp úr óhefðbundnum kennsluaðferðum og trúum því að það hafi allt að segja hvernig við kennum, ekki síður en hvað við kennum. Verkefni kennarans er að virkja gagnrýna hugsun nemendans, að kenna honum að taka ekkert sem gefnum hlut, ekki heldur þeim fróðleik sem kennarinn kann að flytja honum. Gagnkvæmt samtal nemenda og kennara er mikilvægur liður í þessu ferli og það á sér trauðla stað í stórum fyrirlestrarsölum þar sem hundruðir nemenda eru saman komnir og svigrúm er lítið fyrir nemendur að koma að spurningum eða athugasemdum. Þess vegna kennum við í smærri hópum á Bifröst og leggjum mikla áherslu á gagnvirkni kennara bæði í staðnámi og fjarnámi.

 

Kjöraðstæður fyrir fjölskyldufólk og fjölbreytt félagslíf
Háskólaþorpið með sitt persónulega viðmót, þétt grannasamfélag og sterkt félagslegt net er nokkuð sem erfitt er að lýsa með orðum. Það að nemendur og starfsfólk búi saman í litlu háskólaþorpi þar sem allt snýst um menntun skapar einstaka stemningu og tengslanet sem varir alla ævina. Í þorpinu er allt er innan seilingar, hvort sem það er leikskólinn, matvöruverslunin, kaffihúsið með hollum og góðum mat, sparkvöllurinn, bókasafnið, jógasetrið eða líkamsræktin. Að ekki sé talað um fallega náttúru hvert sem litið er. Á Bifröst þarf ekki að hafa áhyggjur af skutlinu sem er að sliga nútímafjölskylduna víða, skólabíllinn sækir börnin í grunnskólann að Varmalandi á morgnana og skilar þeim heim síðdegis. Hjallastefnan rekur leikskóla á Bifröst fyrir minni börnin og í Borgarnesi er nýr og framsækinn menntaskóli. Og svo hjálpast allir að í daglegu amstri. Þessar kjöraðstæður fyrir börn og fjölskyldur gera það að verkum að stór hluti nemenda á Bifröst er fjölskyldufólk. Skólinn hefur síðan sniðið skólastarfið að þörfum slíkra nemenda með því að bjóða upp á sumarnám en með því móti gefst nemendum kostur á að klára námið fyrr og koma undir sig fótunum á vinnumarkaði. Fjöldi nemenda við skólann hefur einnig valið að stunda nám í fjarnámi, en fjarnámsbúnaður skólans hefur reynst vel ásamt því fyrirkomulagi að fjarnemar komi reglulega á vinnuhelgar og hitti samnemendur sína og kennara annað slagið. Félagslíf á Bifröst er einnig fjölbreytt og ættu allir að finna þar eitthvað við sitt hæfi. Á svæðinu eru starfræktir ýmsir klúbbar, stjórnmálafélög, útivistarklúbbar, AA og séntilmannaklúbbur svo eitthvað sé nefnt, ásamt því sem staðið er að reglulegum uppákomum fyrir íbúa.

 

Nám á Bifröst - fjárfesting sem borgar sig
Nám við Háskólann á Bifröst er fjárfesting sem borgar sig . Þeir sem komast inn í nám við skólann leggja ekki aðeins stund á nám heldur er þeim boðið inn í samfélag sem er einstakt á Íslandi og hlúir vel að þeim sem þar búa. Við látum okkur hvern einstakling í nemendahópnum varða og viljum sjá hann vaxa og dafna á námstímanum. Við tökum vel á móti áhugasömum umsækjendum um skólavist og ég hvet þig, kæri lesandi, til að kynna þér starf skólans betur, með því að hafa samband við okkur eða heimsækja okkur á Bifröst. Sjón er sögu ríkari.

 

Bryndís Hlöðversdóttir,
rektor

Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri