Húsreglur í Nemendagörðum

 

 

1. gr. Umgengni

Íbúum er skylt að ganga þrifalega og hljóðlega um íbúðir og lóð. Óheimilt er að negla í veggi og liggur bótaskylda við. Ber íbúum ætíð að hafa hugfast að valda öðrum íbúum hússins sem minnstu ónæði og óþægindum. Eftir kl. 24.00 og til kl. 07.00 má enga háreysti hafa, er raskað geti svefnfriði manna í öðrum íbúðum. Séu veislur haldnar af meiriháttar tilefni, er þó heimilt að færa til upphaf fyrrnefnds tímabils í samráði við íbúa þeirra íbúða sem næst liggja. Ætíð skal tilkynnt um slíkar veislur til sviðsstjóra húsnæðis með góðum fyrirvara. Reykingar eru ekki  leyfðar inni í íbúðum í Bolla -, og Vallarkoti, Ás-, Mið- og Útgarði, Vist og Skakka.

 

2. gr. Lóð

Akstur um lóð Nemendagarða er óheimill. Mælst er til að íbúar og gestir þeirra leggi bifreiðum sínum á bifreiðastæði við Skógarsel og á aðalbifreiðastæði skólans. Ef aðgengi sjúkrabifreiða er heft og/eða öryggi íbúa í hættu geta ökumenn bifreiða átt á hættu að bifreiðar í þeirra umsjá verði færðar á þeirra ábyrgð og bera þeir allt tjón sem af slíku hlytist. Leigutökum ber skylda samkvæmt húsaleigusamningi að taka þátt í allsherjarhreingerningu við lóðir a.m.k. tvisvar á ári.

 

3. gr. Þvottahús

Sameiginlegt þvottahús fyrir alla íbúa svæðisins er í kjallara Hamragarða og stendur öllum íbúum til frjálsra afnota að því tilskildu að farið sé eftir þeim reglum sem umsjónarmaður þvottahúss setur.

 

4. gr. Íþrótta- og baðsvæði

Er öllum íbúum eldri en 14 ára frjálst til afnota skv. reglum sem um það gilda hverju sinni. Börn yngri en 14 ára skulu vera í fylgd með fullorðnum. Saunað er tímastillt og starfsmönnum skólans er einungis heimilt að eiga við tækin.

 

5. gr. Rusl

Allt rusl skal vera í lokuðum plastpokum og sett í ruslatunnur og/eða ruslagáma. Óheimilt er að skilja heimilissorp eftir fyrir utan íbúðir. 

 

6. gr. Dýrahald

Ekki er heimilt að halda húsdýr s.s. hunda eða ketti í einstaklingsíbúðum, Hamragörðum og Sjónarhóli. Í öðrum fjölskylduíbúðum má hafa hunda og ketti og gilda þá þær reglur Borgarbyggðar um dýrahald sem eru í gildi hverju sinni.

 

7. gr. Viðhald

Íbúum er skylt að senda verkbeiðnir á verk@bifrost.is eða gera sviðsstjóra húsnæðis strax viðvart ef bilanir eða skemmdir verða á húsnæði eða búnaði. Sjá 6. gr. húsaleigusamnings. 

Brot á þessum reglum skal tilkynna sviðsstjóra húsnæðis eða stjórn Nemendagarða. Ef brot er ítrekað getur það valdið brottvísun úr húsnæðinu sbr. ákvæði húsaleigusamnings.

 

8. gr. Félög leigjenda

Í einstaklingsíbúðum/sambýlum mynda leigjendur hverrar íbúðar mynda saman íbúðarfélag, sem skipuleggur öll þrif (dagleg, vikuleg og við bröttför úr húsnæði) og afnot af sameiginlegu rými. Ákvarðanir íbúðarfélagsins þurfa að vera teknar með einróma samkomulagi allra félagsmanna. Að öðru leyti mótar hvert félag sínar reglur varðandi umgengni og sameiginleg málefni. Óleysanlegum ágreiningi leigjenda íbúðar skal vísað til úrskurðar stjórnar Nemendagarða. Hvert íbúðarfélag skal kjósa sér talsmann sem kemur fram fyrir félagið gagnvart stjórn Nemendagarða. Íbúar á Nemendagörðum mynda með sér hagsmunafélag,íbúaráð, er heldur fundi reglulega, a.m.k einu sinni við upphaf hvers misseris. Íbúar eru hvattir til að mæta á slíka fundi.

 

9. gr. Húsaleigusamningur

Reglur þessar eru settar samkvæmt ákvæði í gildandi húsaleigusamningi (11. gr.) og eru sérstaklega ætlaðar til þess að íbúum séu ljósar skyldur gagnvart öðrum íbúum. Um skyldur gagnvart leigusala (og öfugt), vísast til ákvæða í húsaleigusamningi. Reglur þessar eru settar af stjórn Nemendagarða að höfðu samráði við Háskólaráð Háskólans á Bifröst.

 

Uppfært  5. mars 2009.  

 

Sviðsstjóri húsnæðis.

Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri