Viðskiptalögfræði BS

Sérhæft og krefjandi lögfræðinám

Grunnnám til BS gráðu í viðskiptalögfræði er sett saman úr greinum á sviði lögfræði, og viðskiptafræði auk almennra greina er lúta að aðferðafræði. Nám í viðskiptalögfræði veitir þér sérstöðu meðal lögfræðinga enda er námið eina sinnar tegundar á Íslandi. Námið á sér fyrirmynd í víða í nágrannalöndum okkar þar sem slík þverfagleg blanda lögfræði og viðskiptafræði er velþekkt og vinsælt nám. Náminu er ætlað að veita hagnýtan og fræðilegan undirbúning að fjölbreyttum sérfræðings- og stjórnunarstörfum lögð er áhersla á að nemendur öðlist haldgóða þekkingu á viðfangsefnum á sviði lögfræði og fjármála. Þegar námið fór af stað sögðum við sem svo að við vildum þjálfa lögfræðinga sem kynnu að reikna eða stjórnendur sem kynnu skil á lögfræði, eftir því hvernig horft er á málið. Þetta á jafnvel við nú og þá. Námið hefur á hinn bóginn tekið breytingum og þróast í takt við breytingar í samfélaginu og innan skólans.

 

Að loknu námi

Möguleikar viðskiptalögfræðinga að loknu námi eru fjölbreyttir og er námið góður undirbúningur fyrir krefjandi störf í atvinnulífinu. Flestir kjósa að ljúka ML gráðu í lögfræði og uppfylla nemendur að lokinni ML gráðu almenn menntunarskilyrði til að gegna störfum dómara og málflytjenda. Lögfræðingar sem kjósa þessa leið hafa aukna þekkingu á fjármálum og rekstri og hafa margir kosið að nýta þá sérþekkingu í lögmannsstörfum sínum. Aðrir hafa kosið að fara beint út á vinnumarkaðinn að lokinni BS gráðu í viðskiptalögfræði og eða í frekara nám við íslenska og erlenda háskóla.

 

Nám á Bifröst

Í öllu námi á Bifröst er lögð rík áhersla á að nemendur geti annars vegar unnið sjálfstætt að úrlausn krefjandi verkefna og hins vegar unnið í hópi samnemenda að rannsóknum og úrlausn stærri verkefna, kynnt þau og lagt í dóm kennara og samnemenda. Lögð er áhersla á gagnrýna hugsun og hagnýta tengingu við raunhæf verkefni sem eru fleiri og umfangsmeiri en almennt gerist við háskóla hér á landi. Sérstaða í kennsluháttum Bifrastar felst meðal annars í svokölluðum misserisverkefnum sem unnin eru í 4-6 manna hópum. Nemendur eiga að vinna þrjú slík verkefni í náminu, þ.e. eitt í lok hverrar haustannar. Verkefni eru oft unnin í samvinnu við fyrirtæki, sveitarstjórnir, opinberar stofnanir og aðra aðila utan skólans og eru varin fyrir dómnefnd tveggja kennara ásamt hópi nemenda.

 

Framvinda og námslok

Nám til grunngráðu tekur yfirleitt þrjú ár. Á Bifröst gefst nemendum kostur á að ljúka námi á skemmri tíma þar sem sumarnám er hluti reglulegs náms. Nemendur geta því lokið 80 ECTS einingum á ári í stað 60. Þannig er hægt að ljúka námskeiðum að mestu leyti á tveimur árum, en á þriðja ári gera nemendur lokaverkefni auk þess að ljúka einingum sem eftir eru með starfsþjálfun eða valnámskeiðum. Náminu má því ljúka á tveimur og hálfu ári.

 

Inntökuskilyrði

Til að geta innritast í námið þurfa nemendur að hafa lokið stúdentsprófi eða sambærilegri menntun t.d. úr Háskólagátt Háskólans á Bifröst.

 

Umsjón yfir námslínu: Þórdís Sif Sigurðardóttir, sviðsstjóri lögfræðisviðs, thordissif@bifrost.is

Á skrifstofu:

Umsjón með staðnámi: Emma Björg Eyjólfsdóttir, stadnam@bifrost.is

 

Viðskiptalögfræði er aðeins kennd í staðnámi.

 

 

Þó formlegum umsóknarfresti sé nú lokið eru allar umsóknir sem berast skoðaðar.

 

Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri