
Grunnnám í viðskiptafræði við Háskólann á Bifröst er alhliða viðskiptanám sem ætlað er að búa nemendur undir ábyrgðar-, forystu- og stjórnunarstörf í atvinnulífinu. Boðið er upp á allar helstu greinar viðskiptafræðinnar, þ.e. fjármál, hagfræði, stjórnun og markaðsmál, auk almennra námsgreina. Námið er á íslensku en nemendur geta dvalið eina önn í skiptinámi við erlendan samstarfsháskóla.
Staðnám og fjarnám
Viðskiptafræðin er í boði bæði í staðnámi og í fjarnámi.
Í staðnámi er hefðbundið viðskiptafræðinám.
Í fjarnámi eru þrjár námslínur í boði:
Í staðnáminu eru sumarannir auk hefðbundinna haust- og voranna, sem þýðir að nemendur geta lokið BS námi á tveimur og hálfu ári. Í fjarnámi er námið skipulagt sem 3ja ára nám. Nemendum í fjarnámi býðst þó einnig að taka sumarnámskeið í staðnámi. Öflugur fjarnámsbúnaður gerir nemendum kleift að stunda fjarnám í viðskiptafræði hvar sem er. Fyrirlestrar eru aðgengilegir á vef skólans og geta nemendur nálgast þá þegar þeim hentar og hlustað á þá í tölvunni eða hlaðið þeim niður á WMV eða Ipod, eftir því hvað hentar hverjum og einum.
Í hverju fjarnámskeiði er vinnuhelgi og eru þær mikilvægur þáttur í fjarnáminu á Bifröst. Þær eru notaðar til fyrirlestra, verkefnavinnu og samskiptaþjálfunar. Mikil áhersla er lögð á að nemendur hagi skipulagi sínu þannig að þeir geti mætt á vinnuhelgar og tekið fullan þátt í kynningum, gagnrýnni umræðu og öðru sem fram fer.
Nám á Bifröst
Í öllu námi á Bifröst er lögð rík áhersla á að nemendur geti annars vegar unnið sjálfstætt að úrlausn krefjandi verkefna og hins vegar unnið í hópi samnemenda að rannsóknum og úrlausnum stærri verkefna, kynnt þau og lagt í dóm kennara og samnemenda. Lögð er áhersla á gagnrýna hugsun og hagnýta tengingu við raunhæf verkefni sem eru fleiri og umfangsmeiri en almennt gerist við háskóla hér á landi.
Sérstaða í kennsluháttum Bifrastar felst meðal annars í svokölluðum misserisverkefnum sem unnin eru í 4-6 manna hópum. Nemendur eiga að vinna þrjú slík verkefni á námstímanum. Verkefnin eru oft unnin í samvinnu við fyrirtæki, sveitarstjórnir, opinberar stofnanir og aðra aðila utan skólans og eru varin fyrir dómnefnd tveggja kennara ásamt hópi nemenda.
Framvinda og námslok
Nám til grunngráðu tekur yfirleitt þrjú ár. Á Bifröst gefst nemendum í staðnámi kostur á að ljúka námi á skemmri tíma þar sem sumarnám er hluti reglulegs náms. Nemendur geta því lokið 80 ECTS einingum á ári í stað 60. Þannig er hægt að ljúka námskeiðum að mestu leyti á tveimur árum, en á síðustu önninni skrifa nemendur lokaritgerð auk þess að ljúka einingum sem eftir eru með starfsþjálfun eða valnámskeiðum. Náminu má því ljúka á tveimur og hálfu ári. Fjarnám í viðskiptafræði er skipulagt sem hefðbundið þriggja ára nám. Nemendum í fjarnámi býðst þó einnig að taka sumarönn í staðnámi.
Inntökuskilyrði
Til að geta innritast í námið þurfa nemendur að hafa lokið stúdentsprófi eða sambærilegri menntun t.d. úr Háskólagátt Háskólans á Bifröst, frumgreinadeild Háskólans á Bifröst eða öðru undirbúningsnámi fyrir háskólanám.
Umsjón yfir námslínu: Sigurbjörn Einarsson, sviðsstjóri viðskiptafræðisviðs, sigurbjorn@bifrost.is
Á skrifstofu:
Umsjón með staðnámi: Emma Björg Eyjólfsdóttir, stadnam@bifrost.is
Umsjón með fjarnámi: María Einarsdóttir, fjarnam@bifrost.is
Þó formlegum umsóknarfresti sé nú lokið eru allar umsóknir sem berast skoðaðar.
Sækja um BS í viðskiptafræði í staðnámi:

Sækja um BS í viðskiptafræði í fjarnámi:

Sækja um BS í viðskiptafræði með áherslu á markaðssamskipti:

Sækja um BS í viðskiptafræði með áherslu á ferðaþjónustu:
