MS Fjármála- og bankastarfsemi

Meistaranám í fjármála- og bankastarfsemi

(Fjarnám og sumarnám)

 

Meistaranám í fjármálum og bankastarfsemi er sniðið að þörfum þeirra sem hafa áhuga á, eða starfa í fjármálafyrirtækjum eða við fjármál í öðrum fyrirtækjum hér á landi eða erlendis.  Námið er skipulagt út frá þörfum markaðarins sem og út frá því besta sem gerist í erlendum háskólum og er miðað við að það standist alþjóðlegar kröfur sem gerðar eru til slíks náms.

Markmiðið með náminu er að mennta áhugasamt fólk sem öðlast mun djúpstæða þekkingu á þeim vandamálum sem upp geta komið og þá sérstaklega að úrlausnum mála í gjörbreyttu umhverfi íslenskra fjármálafyrirtækja.  Sérstök áhersla verður lögð á þætti eins og útlán banka, aðferðafræði lánveitinga og innheimtu auk innra eftirlits og reglugerða opinberra aðila,  sem er nýjung sem Bifröst býður upp á.

  • Námið er í stöðugri endurskoðun og tekur því mið af þörf atvinnulífsins og samfélagsins alls
  • Það veitir traustan fræðilegan grunn í fjármálum og bankastarfsemi
  • Það gefur mikla innsýn í þekkingu og reynslu þeirra sem starfað hafa á þessum markaði á mismunandi sviðum.
  • Kennsluaðferðir eru frábrugðnar því sem þekkist annars staðar þar sem blandað er saman fjarnámi og staðnámi.  Staðnámið er  kennt á sumrin.
  • Raunhæf verkefni þar sem tekið er á verkefnum sem upp kunna að koma hverju sinni, bæði í einstaklings- og hópaverkefnum
  • Hægt er að taka hluta námsins við erlendan samstarfsskóla
  • Kennarar eru innlendir og erlendir sérfræðingar

 

Uppbygging námsins er með þeim hætti að það hentar mjög vel einstaklingum sem eru nú þegar við störf þar sem námið er kennt í fjarnámi og á sumarmisserum.  Nemendur geta valið hvort þeir taka 10 -12 námskeið og ritgerð eða taki 15 námskeið og sleppi ritgerð.

 

 

 

 


 

 
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri