Grunnnám
Í BS námi í viðskiptafræði eru öll helstu svið fjármála, stjórnunar, markaðsmála og viðskipta kennd. Námið er alhliða viðskiptanám sem ætlað er að búa nemendur undir ábyrgðar-, forystu- og stjórnunarstörf í innlendu og alþjóðlegu samkeppnisumhverfi. Skólinn á sér langa sögu því í yfir 90 ár hefur Háskólinn á Bifröst, og undanfarar hans, séð um kennslu fyrir stjórnendur og forystufólk í atvinnulífinu.
Í viðskiptadeild er lögð mikil áhersla á að nemendur takist á við raunhæf og krefjandi viðfangsefni þar sem þeir öðlast þjálfun í að beita menntun sinni við raunhæfar aðstæður, læra að þekkja sjálfa sig, tileinka sér ný viðhorf og öðlast hæfni í mannlegum samskiptum í gegnum mikla verkefnavinnu með fólki með margbreytilegan bakgrunn.
Viðskiptadeildin leggur mikinn metnað í að vera í miklum og góðum tengslum við atvinnulífið sem endurspeglast í kennslu og verkefnavinnu nemenda. Kennarar deildarinnar eru um 60 talsins og hver og einn þeirra er sérfræðingur á sínu sviði. Það er leiðarljós okkar að auka samkeppnishæfni og færni nemenda okkar og því höfum við sett okkur það markmið að viðskiptadeild Háskólans á Bifröst sé fyrsti kostur þeirra sem vilja læra viðskiptafræði hér á landi, við metnaðarfullar aðstæður, í góðu og jákvæðu umhverfi.
Nám til BS gráðu í viðskiptafræði er opið þeim sem lokið hafa stúdentsprófi eða sambærilegri menntun t.d. úr frumgreinadeild Háskólans á Bifröst.
Umsóknarfrestur
Umsóknarfrestur í grunnnám og meistaranám er til 15. júní 2010.