Starfsnám

Starfsnám

 

Nemendur geta sótt um starfsnám í stað valnámskeiðs. Starfsnámið er í öllum tilvikum ólaunað en nemendur fá 6 ECTS einingar fyrir fulla vinnu í fjórar vikur (160 klukkutstundir). Starfsnámið er valkostur sem nemendur í öllum námslínum í grunnnámi geta sótt um. Meistaranemar í ML námi, alþjóðaviðskiptum og menningarstjórnun geta einnig sótt um starfsnám í stað 6 eininga valnámskeiðs.

 

Hægt er að sækja um starfsnám til umsjónarmanns starfsnámsins og eru umsóknarfrestir fyrir hverja önn tilgreindir í dagskrá skólaársins. Umsókn þarf að fylgja ferilskrá ásamt upplýsingum um hvenær er óskað eftir að komast að í starfsnám og hver eru helstu áhugasvið umsækjenda. Ferilskráin þarf að vera nægjanlega vönduð til að hægt sé að framsenda áfram á þau fyrirtæki sem eru í samstarfi við skólann um starfsnám.

 

Skólinn getur ekki tryggt það fyrirfram að pláss finnist fyrir alla þá sem sækja um starfsnám hverju sinni, þar sem við treystum á samstarf fyrirtækja í þessum efnum. Leitast er við að vinna úr umsóknum nægjanlega hratt til að nemendur geti gert aðrar ráðstafanir varðandi skráningar í námskeið, ef ekki tekst að finna pláss fyrir alla umsækjendur.

 

Umsjónarmaður starfsnáms: Auður H Ingólfsdóttir, lektor og sviðsstjóri félagsvísindasviðs (audurhi@bifrost.is)

 

Nánari upplýsingar er að finna í viðmiðum um starfsnám í grunnnámi og meistaranámi.

 

Starfsnám í grunnnámi

 

Starfsnám í meistaranámi

 

Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri