Símenntun

Máttur kvenna

  

Háskólinn á Bifröst býður upp á rekstrarnám í fjarnámi fyrir konur sem hafa áhuga á að bæta rekstrarþekkingu sína. Máttur kvenna  er 3ja mánaða námskeið sem hefst með vinnuhelgi á Bifröst. Um 700 konur hafa lokið þessu námi. 

  • Máttur kvenna I hefst næst með vinnuhelgi á Bifröst 20.-21. september 2013.
  • Máttur kvenna II er næst í boði á haustönn 2013 og hefst með vinnuhelgi á Bifröst 20.-21. september.
  • Umsóknarfrestur er til 15. ágúst 2013.

     

Sækja um nám - Máttur kvenna I

Sækja um nám - Máttur kvenna II

 


 

Stjórnun og samvinna í ferðaþjónustu

Stjórnun og samvinna í ferðaþjónustu er nýtt nám við Háskólann á Bifröst, sérsniðið fyrir stjórnendur og rekstraraðila í ferðaþjónustu. Kennt er í fjarnámi yfir 9 vikna tímabil og eru vinnulotur á Bifröst í upphafi og enda námsins.

 

 

  • Stjórnun og samvinna í ferðaþjónustu hefst næst á Bifröst í október 2013.
  • Umsóknarfrestur er til 15. ágúst 2013.

     

    Sækja um nám

     

     

     


    Sterkari stjórnsýsla

    Háskólinn á Bifröst býður upp á nám fyrir stjórnendur í sveitarfélögum sem kallast Sterkari stjórnsýsla. Námið stendur yfir í 12 vikur og fer fram í fjarnámi með vinnulotum á Bifröst þrisvar sinnum yfir námstímann. Í maí 2012 útskrifaðist fyrsti hópur nemenda en námið hefst að nýju 20.-21. september 2013.

    Ummæli nemenda í Sterkari stjórnsýslu

     

     

  • Sterkari stjórnsýsla hefst næst með vinnuhelgi á Bifröst 20.-21. ágúst 2013.
  • Umsóknarfrestur er til 15. júní 2013.

     

    Sækja um nám

     

     


    Diplómanám í verslunarstjórnun

    Háskólinn á Bifröst býður upp á diplómanám í verslunarstjórnun. Um er að ræða starfstengt nám sem fram fer að mestu með fjarnámi og stendur yfir í 3 annir. Markmið námsins er að auka hæfni og þekkingu starfsfólks sem vinnur við verslun og þjónustu. Að námi loknu útskrifast nemendur með diplómapróf í verslunarstjórnun. Starfsmenntasjóður verslunar- og skrifstofufólks veitir félagsmönnum VR 75% styrk fyrir skólagjöldum.

    140 nemendur hafa lokið diplómanámi í verslunarstjórnun.

    Ummæli nemanda í diplómanámi í verslunarstjórnun

      Sækja um nám

           

    • Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri