Frumgreinadeild

Frumgreinadeild veitir eins árs sérhæfðan undirbúning fyrir háskólanám á Bifröst

 

Deildin er ætluð þeim sem ekki fullnægja inntökuskilyrðum um stúdentspróf og öðrum þeim sem vilja styrkja umsókn sína um nám á Bifröst með eins árs undirbúningi í grunnfögum. Nám í frumgreinadeild er góð leið fyrir þá umsækjendur sem hafa verið frá námi í langan tíma. Nemendur sem ljúka námi í frumgreinadeild með I. einkunn (7,25) eða hærra eiga forgang á skólavist í háskóladeildum skólans á næsta háskólaári. Þó er ekki unnt að tryggja nemendum úr frumgreinadeild fleiri en 30 pláss í háskóladeildunum. Ef umsóknir eru fleiri en hægt er að taka við skal þrjátíu efstu umsækjendunum tryggt pláss en öðrum nemendum er frjálst að sækja um og fara þá í hóp almennra umsækjenda. 

 

Í frumgreinadeild eru þau grunnfög kennd sem nýtast nemendum til undirbúnings fyrir nám í háskóladeildum Háskólans á Bifröst. Lögð er áhersla á kennslu í ensku, stærðfræði, bókhaldi og upplýsingatækni. Auk þess er kennd hagfræði, stjórnmálafræði, lögfræði, íslenska, heimspeki og danska sem lagamál. Mælst er til að umsækjendur hafi lokið ensku og stærðfræði 103 og 203 á framhaldsskólastigi eða sambærilegu námi.

 

Kennsla fer fram með fyrirlestrum, umræðutímum og verkefnum. Verkefnavinna nemenda er þungamiðjan í náminu. Verkefnin eru ýmist einstaklingsverkefni eða hópverkefni. Nemendur skila að jafnaði 1 verkefni á viku í hverri námsgrein, sem gerir 5-6 verkefni að jafnaði í viku. Vikuleg verkefni nemenda vega 60% af lokaeinkunn en lokapróf 40%.

 

Kennsluárinu er skipt í tvö 14 vikna misseri auk 9 vikna sumarannar. Regluleg kennsla stendur samtals í 13  vikur á hvoru misseri og próf í eina viku. Á sumarönn er prófað eftir hverja lotu en loturnar eru þrjár. 

 

Umsækjendur í frumgreinadeild þurfa að hafa lokið um 90 einingum á framhaldsskólastigi, lánshæfu námi frá sérskóla samkvæmt skilgreiningu LÍN eða sambærilegu námi. Umsækjendur sem orðnir eru 25 ára eiga möguleika á að fá starfsreynslu metna til eininga að hluta. Almennt ganga þeir umsækjendur fyrir sem eldri eru en 25 ára og hafa öðlast starfsreynslu í atvinnulífinu.

Nám í frumgreinadeild er á framhaldsskólastigi og er lánshæft samkvæmt reglum Lánasjóðs íslenskra námsmanna.

 

Nánari upplýsingar veitir María Einarsdóttir, umsjónarmaður frumgreinadeildar, marieae@bifrost.is

 

   

Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri