Kaffi Bifröst
S: 435-0101
Kaffi Bifröst er hjarta staðarins. Þar er boðið upp á fjölbreyttan mat í hádeginu og svo er ávallt boðið upp á gott kaffi og meðlæti. Þá eru oft einhverjir viðburðir á Kaffi Bifröst eins og tónleikar, Gettu Bifröst, beinar útsendingar frá knattspyrnuleikjum og svo mætti lengi telja. Kaffi Bifröst er því matstofa, kaffihús, veitingastaður og félagsheimili allt í senn.
Samkaup Strax
Ný og glæsileg verslun Samkaupa var opnuð í háskólaþorpinu haustið 2007.
Afgreiðslutímar 1. sept til 1. maí eru eftirfarandi:
Mánudaga til föstudaga: 09:00-18:00, laugardaga frá 11:00-18:00, lokað á sunnudögum.
Sími: 435 0122
Netfang: bifrost@samkaupstrax.is
Verslunarstjóri er Sylvía Ólafsdóttir
Líkamsrækt
Í húsnæði skólans eru þreksalur og líkamsræktarstöðin Jakaból, gufubað, ljós, nuddpottur og vaðlaug. Svæðið er opið alla daga frá klukkan 06:00 á morgnana til 23:00 á kvöldin. Oft er boðið upp á kennslu, yoga, boot camp, spinning og fleira.
Húsnæðissvið - þjónusta
Beiðnir um viðhald skal senda á verk@bifrost.is. Verkbeiðnir á að senda frá Bifrastarnetfangi. Þar þarf að koma fram: nafn, húsnæði, nánari lýsing á því sem laga þarf, símanúmer og upplýsingar um hvort starfsmenn húsnæðissviðs megi fara inn í húsnæðið þó húsráðendur séu ekki viðstaddir.
Þjónustusími húsnæðissviðs er 695 9908 frá klukkan 8.00 til 12.00 og 13.00 -17.00.
Ef um neyðartilvik er að ræða utan venjulegs dagvinnutíma má hafa samband við öryggisvörð í síma 695 9901.
Fólk er beðið um að kynna sér vel reglur um móttöku, skil og úttektir á húsnæði undir liðnum húsnæðissvið á vefnum.
Prestsþjónusta
Háskólaþorpið á Bifröst er í Hvammssókn sem tilheyrir Stafholtsprestakalli.
Sóknarprestur er Elínborg Sturludóttir. Elínborg er með viðtalstíma í Hamragörðum frá 13.00 - 15.00 á miðvikudögum eða eftir samtali. Elínborg er með síma 847 1475 eða á netfangið elinborg.sturludottir@kirkjan.is