Kaffi Bifröst er hjarta staðarins. Þar er boðið upp á fjölbreyttan mat í hádeginu og svo er ávallt boðið upp á gott kaffi og meðlæti. Þá eru oft einhverjir viðburðir á Kaffi Bifröst eins og tónleikar, Gettu Bifröst, beinar útsendingar frá knattspyrnuleikjum og svo mætti lengi telja. Kaffi Bifröst er því matstofa, kaffihús, veitingastaður og félagsheimili allt í senn.
Kaffihúsið er rekið með það að markmiði að bjóða upp á hollan og fjölbreyttan mat og er víða leitað fanga. Kaffihúsið leikur lykilhlutverk í þeirri lífstílsbreytingu sem nú á sér stað á Bifröst. Þess vegna er mikið lagt upp úr hollum réttum sem bæta heilsu fólks.
Alltaf eru á borðstólnum góðar súpur, heimabakað brauð og salatbarinn sívinsæli. Verði er stillt í hóf.
Opnunartímar (nema annað sé tekið fram):
Virka daga frá 8.00 – 20.00Helgaropnun er frá 12.00 – 17.00
Verið hjartanlega velkomin.
Starfsfólk Kaffi Bifrastar