Það er gott að alast upp á Bifröst
Unga kynslóðin unir sér vel á Bifröst í fallegu og öruggu umhverfi. Ýmsar hefðir hafa skapast í háskólaþorpinu sem tengjast unga fólkinu. Fjölskyldudagur er haldinn hátíðlegur í maí með skemmtilegri dagskrá fyrir börn og fullorðna. Dansað er kringum jólatré á háskólatorgi í byrjun aðventu og þar er kötturinn sleginn úr tunnunni á mikilli öskudagshátíð. Nemendafélagið efnir gjarnan til kvikmyndasýninga fyrir börnin, boðið hefur verið upp á danskennslu, tónleika og ýmsar sameiginlegar uppákomur barna og foreldra. Hátt á annað hundrað börn og unglingar búa í háskólaþorpinu á Bifröst í fjölskylduvænu umhverfi þar sem fólki líður vel.
Grunnskólinn á Varmalandi
S: 430 1500 - kristink@gbf.is / inga@gbf.is
Varmaland er lítill þéttbýliskjarni í um það bil tíu mínútna akstursfjarlægð frá Bifröst. Varmalandsskóli er einsetinn grunnskóli með tæplega 160 nemendur. Skólabíll ekur börnunum í skólann og heim. Mjög gott íþróttahús og sundlaug eru við skólann. Nemendur á Varmalandi sem stunda tónlistarnám við Tónlistarskóla Borgarfjarðar sækja tónlistartíma sína í tengslum við skólann. Nýir íbúar á Bifröst þurfa að sækja um skólavist fyrir börn sín. Nánari upplýsingar er að finna á vef Varmalandsskóla.
Skólastjóri á Varmalandi er Ingibjörg Inga Guðmundsdóttir.
Leikskólinn Hraunborg
S: 435 0077 - hraunborg@hjalli.is
Nemendur á Hraunborg eru u.þ.b. 50 og starfsmenn 15. Leikskólinn er rekinn af Hjallastefnunni. Hjallastefnan hefur notið vaxandi virðingar og velgengni undanfarin ár og meðal annars hlotið viðurkenningar fyrir áherslu á jafnréttisuppeldi. Allar nánari upplýsingar má finna á vef Hraunborgar.
Nýir íbúar á Bifröst þurfa að sækja um leikskólavist fyrir börn sín.
Umsóknareyðublöð er að finna á vef Hraunborgar og þeim má skila með rafrænum hætti. Nánari upplýsingar er að finna á vef Hraunborgar.
Leikskólastjóri á Hraunborg er Bára Tómasdóttir.
Menntaskólinn í Borgarnesi
s: 433 7700 - menntaborg@menntaborg.is
Menntaskólinn í Borgarnesi var stofnaður árið 2006. Í boði er nám á fjórum brautum; starfsbraut, almennri braut, félagsfræðibraut og náttúrufræðibraut. Nemendur ljúka stúdentsprófi að jafnaði á þremur árum, þeir fá fartölvur til afnota í skóla og heima, formleg annarpróf eru ekki haldin en í stað þeirra kemur leiðsagnarmat og námsárið er að jafnaði tveimur vikum lengra en í öðrum framhaldsskólum.
Nánari upplýsingar er að finna á vef menntaskólans.
Félagsstarf
Gaukurinn er nafn á tómstundaaðstöðu á Bifröst fyrir nemendur í 7. - 10. bekk í Varmalandsskóla. Gaukurinn er staðsettur innan við Hátíðarsalinn. Opið verður á milli 20:00 og 22:00 á fimmtudagskvöldum. Gengið er inn utan frá við endann á hraunveggnum aftan við kaffihúsið. Umsjónarmaður Gauksins er Haukur Logi Jóhannsson. Eldri nemendur skólans hafa einnig aðgang að félagsmiðstöðinni Óðali í Borgarnesi.
Íþróttir
Börnum úr háskólaþorpinu sem stunda íþróttir stendur til boða að taka þátt í æfingum á vegum Ungmennafélags Stafholtstungna og fara þær fram á Varmalandi. Þá stunda allmörg börn og unglingar frá Bifröst sundæfingar á vegum sunddeildar Skallagríms í Borgarnesi.
Kirkjulegt barnastarf
Kirkjulegt barnastarf fer fram á Bifröst undir stjórn Elínborgar Sturludóttur sóknarprests. Kirkjuskólinn er á mánudögum kl. 16:15 í Kringlunni á Bifröst.