Afþreying og félagsstarf

 

Á Bifröst er mikil hefð fyrir virku og fjörugu félagsstarfi. Í háskólaþorpinu eru einnig fjölmargir afþreyingarmöguleikar. Gott er að skella sér í gönguferð eða í hjólatúr milli verkefna eða í pottinn eftir langan dag.

 

Líkamsrækt

Í húsnæði skólans eru þreksalur og líkamsræktarstöðin Jakaból, gufubað, ljós, nuddpottur og vaðlaug. Svæðið er opið alla daga frá klukkan 06:00 á morgnana til 23:00 á kvöldin.

Tómstundaherbergi

Við hlið líkamsræktarinnar er tómstundaherbergi fyrir íbúa Bifrastar. Þar er poolborð, borðtennisborð og fleira. Opið er frá 08:00 - 23:00 á kvöldin. Börn undir 14 ára aldri verða að vera í fylgd með fullorðnum. Gaukurinn, félagsmiðstöð unglinga á svæðinu, á fasta tíma tvisvar í viku undir eftirliti starfsmanns

Golfvöllurinn Glanni

Golfklúbburinn Glanni er í næsta nágrenni Bifrastar. Golfklúbburinn og Háskólinn á Bifröst hafa gert með sér samkomulag sem veitir nemendum 50% afslátt á vallargjöldum. Nemendur skólans geta fengið afsláttinn með því að koma í afgreiðslu skólans á opnunartíma og fá þar afsláttarmiða sem framvísað skal í Golfskálanum um leið og greitt er.

 

 

Nemendafélagið

 

Nemendafélagið á Bifröst hefur verið starfandi á Bifröst síðan árið 1955. Það er hagsmunafélag nemenda við Háskólann á Bifröst og hlutverk þess er að vera sameiningartákn nemenda og stuðla að öflugu félags- og menningarlífi. Allir nemendur sem stunda nám við Háskólann á Bifröst eru sjálfkrafa aðilar í Nemendafélaginu. Nemendafélagið er rekið með styrkjum frá fyrirtækjum og góðri hjálp frá Háskólanum á Bifröst. Því kostar ekkert fyrir félagsmenn að vera aðilar í félaginu.

 

Ungmennafélag Stafholtstungna

 

Ungmennafélagið Bifröst var stofnað árið 2002 af nemendum skólans til að byggja upp öflugra íþróttastarf stúdenta og ekki síður til að uppfylla þarfir barna og unglinga á svæðinu til íþróttaiðkunar. Árið 2006 sameinaðist það Ungmennafélagi Stafholtstungna og við það jókst starfsemin til muna. Ungmennafélag Stafholtstungna var stofnað árið 1912. Það stendur m.a. að íþróttaæfingum fyrir ungmenni í íþróttahúsinu á Varmalandi og opnum æfingum fyrir nemendur á Varmalandi og í Borgarnesi; öflugri leiklistarstarfsemi o.fl.

 

 

Klúbbar á Bifröst

Jeppaklúbburinn á Bifröst hóf störf sín haustið 2002. Á þeim tíma hefur verið farið í margar ferðir um landið og hafa skiptinemar tekið virkan þátt í þeim ferðum.

 

Hestamannafélagið Röst er félagsskapur fólks með áhuga á hestum og hestamennsku. Röst hefur tekið á leigu hesthús í nágrenni Bifrastar sem meðlimir geta leigt aðstöðu í.

 

Menningarfélagið leggur áherslu á að fá tónlistarmenn og leikrit á Bifröst og hafa margir þekktir listamenn komið fram á vegum þess á Bifröst.

 

Meðal annarra klúbba á Bifröst má nefna dansklúbb, gönguklúbb, skákklúbb, kvikmyndaklúbb og spilafélag. Þeim sem hafa áhuga á að stofna klúbb er bent á Nemendafélagið sem veitir fjárstuðning og nauðsynlega aðstoð.

 

 

Fastir liðir í félagsstarfi Bifrastar eru t.d.:

Í byrjun hvers skólaárs eru nýir nemendur boðnir velkomnir með leikjum, grillveislu og balli. Gettu Bifröst er spennandi spurningakeppni sem haldin er alla þriðjudaga á kaffihúsinu, spyrlar eru nemendur, kennarar, gestir og makar. Ræðukeppni er haldin árlega þar sem keppt er á milli deilda í mælskulist. Ljósmyndakeppnir eru haldnar og hefur hver keppni hefur ákveðið þema. Pixlar veita verðlaun fyrir fyrstu þrjú sætin í keppninni.

 

Bifrastarbikarinn er fótboltamót sem haldið er á hverri önn þar sem keppt er um glæsilegan farandbikar sem Ungmennafélagið gaf. Sápuboltinn er haldinn hvert sumar þar sem segldúkur er strengdur yfir fótboltavöllinn og sápuvatni er sprautað yfir, að því loknu keppa stelpur, strákar, nemendur, starfsfólk og aðrir um Sápuboltabikarinn. Hroki er keppni í þríþraut sem haldin er árlega þar sem þriggja manna lið hjóla 3,5 km., hlaupa 2,5 km og synda að lokum 200 metra í ísköldu Hreðavatninu.

 

Haustfagnaður, grímuball, karókíkvöld, tónleikar, hátíðarkvöldverðir deilda og ýmsar aðrar skemmtanir eru haldnar á hverju ári. Ekki má gleyma Bifróvision sem er árshátíð og söngvakeppni Bifrestinga.

 

Fyrir börnin eru reglulega haldin 3 bíó í skólanum og fjölskyldudagurinn er haldinn hátíðlegur á hverju sumri og er þá margt til skemmtunar fyrir börn og fullorðna.

 

Nemendafélagið heldur úti heimasíðunni www.skolafelag.is

Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri