Fréttir
Skólasetning Háskólans á Bifröst
	<description>Háskólinn á Bifröst verður settur miðvikudaginn 1. september 2010 kl. 9:00 í Hriflu, aðalsamkomusal skólans. Að setningu lokinni verður haldin stutt kynning á námsumhverfi og kennslu skólans. Ítarlega dagskrá fyrir dagana 1. - 3. september er að finna hér</description>
Tónlist sem vettvangur vísinda ráðstefna 31. ágús
	<description>Alþjóðleg málstofa um tónlist sem vettvang vísinda á vegum Háskólans á Bifröst í samvinnu við Háskóla Íslands og FÍH, verður haldin í sal Félags íslenskra hljómlistarmanna (FÍH) Rauðagerði 27, 108 Reykjavík, þriðjudaginn 31. ágúst frá kl. 14 - 17.</description>
Hugmyndasmiðjan 2010 fyrir frumkvöðla
	<description>Í september mun Hugmyndahús háskólanna hleypa af stokkunum  Hugmyndasmiðjunni 2010 fyrir frumkvöðla sem ganga með hugmynd í maganum eða eru komnir skammt á veg og vilja koma henni í framkvæmd. Hér verður spyrnt saman skapandi greinum, tækni, vísindum og viðskiptum því allir eru velkomnir. í Hugmyndasmiðjunni vinna þátttakendur að því að ramma inn sína hugmynd og í lok smiðjunnar eiga þeir að vera í stakk búnir til að hefja vinnslu viðskiptaáætlunar.Hugmyndasmiðjan verður sjósett 2. september kl. 17.15 og stendur í 6 vikur. Fyrirlestrar verða haldnir á fimmtudögum kl. 17.15 og vinnusmiðjur á laugardögum milli kl. 10.00 og 13.00. Í lokin verður úthlutað 6 hvatningarverðlaunum að upphæð 500.000 kr. hver til þeirra hugmyndasmiða sem þykja hafa unnið best úr sinni hugmynd. Fréttatilkynningin sjálf er í viðhenginu</description>
Rannsóknasetur vinnuréttar óskar eftir laganema
	<description>Rannsóknasetur vinnuréttar óskar eftir laganema til að aðstoða við verkefni á vegum setursins. Viðkomandi þarf að hafa sýnt góðan námsárangur og hafa mjög góða enskukunnáttu. Áhugasamir sendi póst til Elínar Blöndal fyrir 19. ágúst nk. á netfangið: elinblondal@bifröst.is, einnig veitir Elín upplýsingar í síma 8226127.</description>
Árbók verslunarinnar 2010
	<description>Út er komin Árbók verslunarinnar 2010 – hagtölur um íslenska verslun, sem Rannsóknasetur verslunarinnar gefur út í samstarfi við Kaupmannasamtök Íslands. Að venju eru í árbókinni viðamiklar tölfræðilegar upplýsingar um verslun hér á landi á síðasta ári. Bókin inniheldur ýmsar upplýsingar um ytri skilyrði verslunar, verðlag, umfang, vöxt einstakra tegunda verslunar,  afkomu hennar í heild og eftir landssvæðum.
Eftirtaldar upplýsingar má finna í árbókinni:
Velta í smásöluverslun árið 2009 var 294,5 milljarðar kr. 
Samdráttur í veltu smásöluverslunar árið 2009 nam 11% að raunvirði frá árinu áður og frá árinu 2007 nam samdrátturinn alls 15,5%. 
Árið 2009 var raunsamdráttur í byggingarvöruverslun um 45,5%, í raftækjaverslun 35,7% og 25,6% samdráttur í húsgagnaverslun. 
Hlutur verslunar í landsframleiðslu var 10,5% árið 2009 og hefur haldist nokkuð stöðugur undanfarin áratug. 
Árið 2009 störfuðu alls 21.200 manns við verslun á Íslandi, eða tæp 12,6% af heildarvinnuafli þjóðarinnar. Þar af voru karlar 12.600 en konur 8.600 
Í janúar 2009 var fermetrafjöldi verslunarhúsnæðis á Íslandi 1.157.922 m2 eða 3,6 m2 hvern íbúa landsins.  Fermetrafjöldi verslunarhúsnæðis jókst um 6,6% frá sama tíma árið áður. 
Heildarlaun afgreiðslufólks í sérvöru- og matvöruverslunum voru 238 þúsund að miðgildi árið 2009, samanborið við 370 þúsund ef horft er til allra starfsstétta.</description>
Rannsóknarsetur verslunarinnar við Háskólann á Bifröst hlýtur styrk
	<description>Efnahags- og viðskiptaráðherra úthlutar styrkjum af ráðstöfunarfé ráðherra og fær RVS styrk en sjá má alla fréttina með því að smella hér.</description>
Húsnæðisúthlutun 2. júlí 2010
	<description>Húsnæðisúthlutun þeirra sem sóttu um til 2. júlí vegna húsnæðis í vetur.Allir eru hvattir til að kynna sér úthlutunarreglur, reglur um dýrahald, húsreglur,reglur um móttöku nýs húsnæðis og úttektir, upplýsingar um verkbeiðnir og fleiraundir Húsnæðissvið á heimasíðu.Fyrirspurnum er svarað á halldora@bifrost.is Halldóra Jónsdóttir, Umsjónarmaður húsnæðisÚthlutunarnefnd Listi yfir úthlutun húsnæðis</description>
Könnun meðal frambjóðenda til Alþingis 2009 send út
	<description>Send hefur verið út könnun til allra frambjóðenda sem buðu sig fram til Alþingis vorið 2009. Í könnuninni eru frambjóðendur spurðir um afstöðu sína til þess hvert þeir telji að hlutverk kjörinna fulltrúa eiga að vera og um afstöðu sína til lýðræðis, auk spurninga um kosningabaráttuna og bakgrunn í stjórnmálum.
Það er markmið að könnun af þessu tagi verði send út til allra frambjóðenda eftir hverjar Alþingiskosningar hér á landi. Vonir standa til að slík könnun verði virkur hluti af pólitískri menningu og að frambjóðendur telji það vera hluta af sínu pólitíska starfi að svara slíkri könnun, þó þeim beri að sjálfsögðu ekki skylda til þess. 
Könnunin er send út nafnlaus og ábyrgst er að svör verða ekki birt með persónugreinanlegum hætti. Ábyrgðarmaður könnunarinnar er Eva Heiða Önnudóttir, stjórnmálafræðingur og aðjúnkt við Háskólann á Bifröst. Auk hennar starfar Katrín Bjarney Guðjónsdóttir, nemi í lögfræði við könnunina.
Könnun þessi er gerð að erlendri fyrirmynd, the Comparative Candidate Survey - CSS (www.mzes.uni-mannheim.de/projekte/ccs), sem er hýst við Háskólann í Mannheim. Ef vel tekst til varðandi gagnaöflun og svörun verður góð verða íslensku gögnin hluti af alþjóðlega gagnasafninu í Mannheim.
Frekari upplýsingar veitir Eva Heiða Önnudóttir, í síma 433 3082 / 891 6993 eða með tölvupósti á netfangið evaheida@bifrost.is</description>
Helga Kristín gestaprófessor í Háskólanum í Miami
	<description>Helga Kristín Auðunsdóttir, viðskiptalögfræðingur, sem lauk ML gráðu frá Háskólanum á Bifröst, hefur þegið boð lagadeildar Háskólans í Miami um stöðu gestaprófessors við skólann næsta skólaár. Helga Kristín lauk bæði BA prófi og meistaraprófi í lögum frá Bifröst og fjallaði lokaverkefni hennar um samkeppnisrétt
Helga mun kenna tvö námskeið á sviði evrópuréttar. Í tilkynningu frá Háskólanum í Miami segist Helga hlakka til að kenna sína uppáhalds námsgrein. „Ég vonast til að geta nýtt mér þær fjölbreyttu kennsluaðferðir sem ég hef upplifað í mínu námi“, en Helga hefur stundað nám í Grikklandi, Venesúela, Bretlandi og Bandaríkjunum auk Bifrastar. „Aðferðir við laganám eru vissulega mismunandi í þessum löndum en lykillinn að árangri er alls staðar sá sami: Dugnaður. Í því felst gríðarmikill lestur í bland við gagnrýna hugsun og hugrekki til að spyrja spurninga“, segir Helga Kristín Auðunsdóttir.
Bryndís Hlöðversdóttir, deildarforseti lagadeildar Háskólans á Bifröst, er mjög ánægð fyrir hönd Helgu. „Háskólinn í Miami er mjög virtur. Þetta er því mikill heiður fyrir Helgu Kristínu og ákveðin viðurkenning fyrir okkur hér á Bifröst líka. Við erum mjög stolt af henni Helgu".
Hægt er að sjá fréttina um þetta á ensku með því að smella hér.</description>
Bifrestingur var skrefi á undan Hæstarétti
	<description>Hæstiréttur komst að sömu niðurstöðu um gengistryggðu kaupleigusamningana og Ingvar Christiansen í lokaverkefni hans til BS gráðu í viðskiptalögfræði á Bifröst. Ingvar segir óvíst að aðrir lánasamningar sem tengdir eru erlendri mynt, svo sem húsnæðislánasamningar, stangist með sama hætti á við lög.
Hægt er að sjá frétt um Ingvar á Pressunni með því að smella hér</description>
Úthlutun húsnæðis til meistaranema
	<description>Úthlutað hefur verið húsnæði til meistaranema sem stunda nám á Bifröst í sumar. Úthlutunarlisti</description>
Nýr rektor tekur við á Bifröst
	<description>80 háskólanemar útskrifuðust í dag frá Háskólanum á Bifröst við hátíðlega athöfn. Nemendur útskrifuðust af viðskiptadeild, félagsvísindadeild og lagadeild. Við útskriftina lét Ágúst Einarsson af störfum sem rektor skólans  en við tók Magnús Árni Magnússon. Magnús Árni er skólanum þaulkunnugur en hann var aðstoðarrektor Háskólans á Bifröst á árunum 2001-2006.
Í fyrstu ræðu sinni sem rektor vék Magnús Árni að þeirri erfiðu stöðu sem háskólar á Íslandi, og sérstaklega sjálfstæðir háskólar, standa frammi fyrir. Hann minnti á að saga Bifrastar spannar 92 ár, en á þeim tíma hafi skólinn gjarnan leitt breytingar í íslensku menntakerfi. „Slíkt er ekki til vinsælda fallið hjá þeim sem vilja helst sitja í friði, einir í krafti ríkisvalds, að því takmarkaða fjármagni sem íslenskt menntakerfi hefur úr að spila,“ sagði Magnús Árni. Hann sagði jafnframt að staðan byði upp á ýmis tækifæri til að endurhugsa samstarf háskóla, en í því verkefni ætti Bifröst að sýna frumkvæði í því að vinna að nánara samstarfi, án þess þó að glata þeim verðmætum sem felast í háskólastarfi á Bifröst. 
Magnús Árni sagði að taka ætti lærdóma hrunsins inn í námið á Háskólanum á Bifröst, og vinna að því að efla samfélagslega meðvitund þeirra sem sem þar nema og starfa. „Þar byggjum við á góðum grunni þess náms sem hér er til staðar, en það hefur alltaf verið með öflugum samfélagsvinkli og aldrei dottið í þá gryfju að telja að hægt sé að líta á samfélagið eins og reiknilíkan verkfræðings, þar sem uppblásinn bólugróðinn er einn við völd svo eftir stendur sviðin jörð. Sálarlausum samfélagslíkönum höfnum við. Á Bifröst er maðurinn og samhengi hans á jörðinni í öndvegi,“ sagði Magnús í ræðu sinni. 
Magnús þakkaði Ágústi Einarssyni, fráfarandi rektor fyrir gott starf í þágu skólans og það góða bú sem hann skilur eftir. „Fráfarandi rektor, dr. Ágúst Einarsson hefur, ásamt stjórn og starfsfólki skólans, eflt faglegt starf skólans og lyft grettistaki í fjármálum hans og stýrt honum í gegnum mesta gerningaveður sem lent hefur á íslensku samfélagi um langan aldur með þeim hætti að skólinn stendur sterkt fjárhagslega. Það er ekki lítið afrek,“ sagði Magnús í ræðu sinni.
Hér er hægt að nálgast ræðu Magnúsar Árna. 
Um Magnús Árna Magnússon
Starfsferill:
- Rektor Háskólans á Bifröst frá 5. júní 2010 
- Forstöðumaður Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands 2009-2010- Aðjúnkt við stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands frá hausti 2008- Framkvæmdastjóri Skóla skapandi greina hjá Keili, miðstöð vísinda, fræða og atvinnulífs 2008-2009- Partner hjá Capacent 2006 - 2008- Forseti félagsvísindadeildar á Bifröst 2005 - 2006- Forseti viðskiptadeildar á Bifröst 2003 - 2005- Aðstoðarrektor Viðskiptaháskólans á Bifröst 2001 - 2006Menntun:- Doktorsnám í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands frá 2001- M.Phil. í Evrópufræði (European Studies) frá University of Cambridge, 2001- MA í hagfræði frá University of San Francisco, 1998- BA í heimspeki frá Háskóla Íslands, 1997</description>
Ágúst Einarsson gagnrýnir stjórnvöld við útskrift
	<description>Ágúst Einarsson gagnrýndi stjórnvöld harðlega við útskrift á Bifröst í dag og vill nýtt lýðveldi og beina kosningu framkvæmdavaldsins. Í síðustu útskriftaræðu Ágústs Einarsson sem lét nú af störfum rektors sagði hann bestu leiðin fyrir Íslendinga út úr kreppunni væri að efla háskóla og hann gagnrýndi stjórnvöld fyrir að rífa niður háskólakerfið. Hann sagði helsta vanda Íslendinga vera fámennið og „þegar bættust við siðleysi, græðgi og glæpamennska nokkurra tuga manna í lykilstöðum í fjármálageiranum þá hrundi hið fámenna samfélag okkar eins og spilaborg“.
Ágúst taldi ekki víst að hægt væri að halda þjóðinni saman eftir þetta og hann tók undir hugmynd Njarðar P. Njarðvík að stofna ætti nýtt lýðveldi enda væri flokkakerfi 20. aldarinnar gjaldþrota. Ágúst kvaðst vilja að framkvæmdavaldið væri kosið beint eins og gert er í Bandaríkjunum og í Frakklandi að hluta og rifjaði upp hugmyndir Bandalags jafnaðarmanna og Vilmundar Gylfasonar.
Ágúst sagði að skólastarfið hefði gengið vel á Bifröst og gæði námsins aukist eins og kom fram í erlendri úttekt á þessu ári. Skólinn var rekinn með hagnaði á síðasta ári og það sem af er þessu ári. Umsóknir hafa aldrei verið fleiri en í fyrra og nemendur aldrei fleiri.
Ágústi voru færðar margvíslegar þakkir fyrir starf sitt fyrir Bifröst og mun skólinn m.a. halda sérstaka alþjóðlega ráðstefnu um menningu og viðskipti honum til heiðurs í haust. Magnús Árni Magnússon tók við rektorsstarfinu við þessa útskrift og var hann boðinn velkominn af þeim 400 gestum sem sóttu háskólahátíðina á Bifröst í dag. 
Ræða Ágústs Einarssonar við útskrift í dag á Bifröst</description>
Útskrift á Bifröst
	<description>Í dag, laugardaginn 5. júní 2008, verður háskólahátíð á Bifröst þar sem 80 nemendur verða brautskráðir. Þetta er síðasta verk Ágústs Einarssonar sem lætur nú af störfum sem rektor. Á háskólahátíðinni tekur Magnús Árni Magnússon við starfi rektors. Nemendur í Tónlistarskóla Borgarfjarðar leika við athöfnina.
Hægt er að sjá beina útsendingu frá brautskrift með því að smella hér.</description>
Háskólinn á Bifröst og Foreldrafélag Háskólans á Bifröst kynna: Börn og umhverfi
	<description>Börn og umhverfiNámskeið fyrir börn 10 ára og eldri sem gæta yngri barna. Á námskeiðinu er farið í ýmsa þætti er varða umgengni og framkomu við börn, aga, umönnun og hollar lífsvenjur, leiki og leikföng. Einnig er lögð áhersla á slysavarnir og algengar slysahættur í umhverfinu.
 Markmið
Að þátttakenda læri að umgangast börn á ýmsum aldri, þekki helstu slysavarnir og gildi þeirra og geti brugðist við algengum áverkum og veikindum barna.
 Viðfangsefni 
Þroski barnaSamskiptiLeikir og leikföngSlysaforvarnirSlys í heimahúsumSkyndihjálp</description>
Ásta Dís Óladóttir lætur af störfum sem forseti Viðskiptadeildar
	<description>Ásta Dís Óladóttir, forseti Viðskiptadeildar hefur óskað eftir að láta af störfum sem forseti deildarinnar frá og með laugardeginum 5. júní n.k. eftir brautskráningu nemenda  og hefur rektor fallist á það.  Ásta Dís mun snúa sér að stjórnunarstörfum á sviði banka og fjármála en  hún hefur starfað hjá Bifröst undanfarin þrjú og hálft ár og  í háskólasamfélaginu s.l. 12 ár.</description>
Ársfundur á fimmtudaginn
	<description>Fimmtudaginn 3. júní er ársfundur skólans og hefst hann kl. 16 í hátíðarsalnum. Þar verður ársskýrsla skólans fyrir skólaárið 2008/2009 kynnt.</description>
Stofnun Sigurðar Líndals í réttarsögu
	<description>Snorrastofa í Reykholti og Háskólinn á Bifröst hafa ákveðið að koma sameiginlega á fót rannsóknarstofnun í réttarsögu sem kennd verður við Sigurð Líndal, prófessor við Háskólann á Bifröst, áður um árabil prófessor við lagadeild Háskóla Íslands. Markmið stofnunarinnar er að efla rannsóknir og útgáfu á sviði réttarsögu. Hún mun vinna að því að auðvelda fræðimönnum að helga sig rannsóknum í réttarsögu, standa fyrir útgáfu á fræðilegu efni á þessu sviði og vinna að kynningu. Gert er ráð fyrir að formaður stjórnar Snorrastofu og rektor Háskólans á Bifröst sitji í stjórn auk forseta lagadeildar Háskólans á Bifröst. Snorrastofa og Bifröst sjá í sameiningu um að útvega stofnuninni starfsaðstöðu en leitað verður eftir fjármögnun verkefna hjá einkaaðilum og opinberum aðilum. Efnt verður til móttöku af þessu tilefni miðvikudaginn 26. maí 2010 milli kl. 17 og 19 í Bókhlöðusal Snorrastofu. 
Allir velkomnir.</description>
Tónlist, merking og aðferð
	<description>Laugardaginn 29. maí, kl. 10.00-12.00, verður haldin ráðstefna um tónlistarrannsóknir í Skála, í byggingu Menntavísindasviðs Háskóla Íslands við Stakkahlíð. Umfjöllunarefnið er tónlist og rannsóknir á tónlist. Píanóleikarinn William Westney og tónlistarheimspekingurinn Cynthia M. Grund flytja erindi um „tónlistarflutning sem rannsóknarferli“ en þau eru á Íslandi í boði Háskólans á Bifröst og kenna þar námskeið um fjölháttamiðlun (multimodality) í samhengi tónlistar. Njörður Sigurjónsson, lektor við Háskólann á Bifröst, gerir grein fyrir rannsókn á fagurfræði tónleika og tilbrigði við tónleika sinfóníuhljómsveita; Helga Rut Gudmundsdottir lektor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands fjallar um rannsókn sína á þætti foreldra í tónlistarkennslu ungbarna; og Sigrùn Lilja Einarsdottir, doktorsnemi við Exeterháskóla, skýrir frá tónlistarfélagsfræðilegri rannsókn sinni á upplifun og reynslu kórmeðlima í Croydon Bach kórnum í London á flutningi H-moll messu e. J.S. Bach.       Ráðstefnan er samstarfsverkefni Háskólans á Bifröst, Listaháskóla Íslands og Menntavísindasviðs Háskóla Íslands og fer fram á ensku.  Aðgagur er ókeypis og allir velkomnir. Dagskrá:William Westney and Cynthia M. Grund:             "Musical Performance as a Process of Inquiry"Njörður Sigurjónsson:                                                  "The Meaning of the Concert"Helga Rut Gudmundsdottir:                                      "Musical Parenting in Iceland: A Study with Young Mothers in a Parent-Infant Music Course"Sigrùn Lilja Einarsdottir:                                               "Bach in Everyday Life and the Experience of Performing 'Art Music': The Case of the Croydon Bach Choir in London Performing Bach´s Mass in B Minor.“  William Westney leikur einnig á tónleikum í Salnum í Kópavogi 28. maí klukkan 19.30.(http://salurinn.is/default.asp?page_id=7502&event_id=8007)     Research Seminar: Music, Meaning and Method10:00 a.m., Saturday, May 29, 2010 University of Iceland, Reykjavik. Venue: Skáli.  Nánari upplýsingar veitirNjörður Sigurjónsson</description>
Háskólinn á Bifröst mótmælir harðlega hugmyndum prófessora við ríkisháskóla
	<description>Háskólinn á Bifröst mótmælir harðlega þeim hugmyndum Félags prófessora við ríkisháskóla að Háskóli Íslands taki yfir kennslu Háskólans á Bifröst. Nám við Háskólann á Bifröst einkennist af mikilli verkefnavinnu og fámennum námskeiðum þar sem lögð er áhersla á hvern nemanda. Að halda því fram að best sé að kenna mörg hundruð manns í einu í Háskólabíó eins og gert er í Háskóla Íslands er fráleitt og sýnir að prófessorar við ríkisháskóla gera lítið úr gæðum háskólanáms. Flestar námsleiðir við Háskólann á Bifröst eru ekki kenndar við aðra háskóla hérlendis, eins og t.d. viðskiptalögfræði, heimspeki/hagfræði/stjórnmálafræði (HHS), alþjóðafræði, menningarstjórnun og stjórnun heilbrigðisþjónustu. Nemendum frá Bifröst hefur vegnað vel í atvinnulífinu og átt auðvelt með að fá vinnu vegna þeirrar sérstöku kennslufræði sem er við skólann. Rekstur Háskólans á Bifröst er hagkvæmur og skólinn á gott samstarf við aðra háskóla. Ríkisvaldið greiðir mun minna fyrir hvern útskrifaðan nemanda við Háskólann á Bifröst en við ríkisháskóla. Þessum hugmyndum Félags prófessora í ríkisháskólum er því algerlega hafnað.</description>