Frá aðalfundi 2023

Fulltrúaráðsfundir hafa æðsta vald í málefnum háskólans er varða rekstur og fjármál. Háskólaráð er æðsta vald í innri málefnum háskólans samkvæmt reglugerð. Fulltrúaráð fundar a.m.k. einu sinni á ári og er sá fundur jafnframt aðalfundur Háskólans á Bifröst. Verkefni fundarins er að greina frá starfsemi háskólans og samþykkja ársreikning hans fyrir undanfarið rekstrarár.

Fulltrúaráð Háskólans á Bifröst er skipað 15 einstaklingum og fimm til vara.

Þeir sem tilnefna í fulltrúaráð Háskólans á Bifröst eru: Borgarbyggð, Háskólaráð Háskólans á Bifröst, Hollvinasamtök Bifrastar, Samband íslenskra samvinnufélaga svf. og Samtök atvinnulífsins.  Hver þessara aðila tilnefnir þrjá fulltrúa og einn til vara. Fulltrúaráð Háskólans á Bifröst skipa:

Fyrir Borgarbyggð:
Aðalmaður til 3 ára:  Þórunn Unnur Birgosdóttir
Aðalmaður til 2 ára:  Bjarney Bjarnadóttir
Aðalmaður til 1 árs:  Helgi Eylífur Þorvaldsson
Varamaður:  Guðveig Eyglóardóttir

Fyrir Hollvinasamtök Bifrastar:
Aðalmaður til 3 ára:  Hallur Jónasson
Aðalmaður til 2 ára:  Tryggvi Haraldsson
Aðalmaður til 1 árs:  Anna Ólöf Kristjánsdóttir
Varamaður:  Birgitta Ásgjörsdóttir

Fyrir Háskólaráð Háskólans á Bifröst:
Aðalmaður til 3 ára:  Hanna Kristín Skaftadóttir
Aðalmaður til 2 ára:  Sævar Ari Finnbogason
Aðalmaður til 1 árs:  Hlynur Finnbogason
Varamaður:  Sólveig Hallsteinsdóttir

 Fyrir Samband íslenskra samvinnufélaga:
Aðalmaður til 3 ára:  Margrét Guðnadóttir
Aðalmaður til 2 ára:  Ólafur Sigmarsson
Aðalmaður til 1 árs:  Hannes Karlsson
Varamaður:  Reimar Marteinsson

Fyrir Samtök atvinnulífsins:
Aðalmaður til 3 ára:  Guðný Halldórsdóttir
Aðalmaður til 2 ára:  Sigurður Helgason
Aðalmaður til 1 árs: Maj Britt Hjördís Briem
Varamaður:  Páll Ásgeir Guðmundsson