Gjaldskrá Háskólans á Bifröst

Skrásetningargjald 
Innritunar og skráningargjald75.000 kr. 
Innritunar og skráningargjald vorönn55.000 kr. 
Innritunar og skráningargjald sumarönn35.000 kr. 
Skráningargjald öryrki (75% mat +), afsláttur25%
Skráningargjald utan skráningartímabils 15%  álag11.250 kr. 
Innritunar og skráningargjald er óafturkræft
Gjöld vegna prófa
Fjarpróf, fyrsta próf6.000 kr. 
Fjarpróf, hvert próf eftir fyrsta próf3.000 kr. 
Úrbótapróf, endurtekningarpróf10.000 kr. 
Þjónusta námsráðgjafa
Þjónusta námsráðgjafa – áhugasviðskönnun10.000 kr. 
Þjónusta námsráðgjafa – námskeið (2 skipti)  5.000 kr. 
Þjónusta námsráðgjafa í hóp – lokaritgerðir (8-10 skipti)10.000 kr. 
Vottorð og ferilsyfirlit afgreidd á skrifstofu 
Vottorð til nemanda2.000 kr. 
Námsferilsyfirlit2.000 kr. 
Námskeiðslýsingar pr. blaðsíðu, hámark fimm bls.2.000 kr. 
Brautskráningaryfirlit2.000 kr. 
Kvittun vegna skólagjalda/skráningargjalds2.000 kr. 
Staðfesting á skráðum einingum með upphæð skráningargjalds2.000 kr. 
Áætluð brautskráning 2.000 kr. 
Staðfesting á mætinu á staðlotu2.000 kr. 
Staðfesting á undanþágu frá fullu námi vegna menntasjóðs2.000 kr. 
Staðfesting fyrir Háskólagátt Háskólans á Bifröst2.000 kr. 
Staðfesting á loknum einingum2.000 kr. 
Staðfesting á skólavist2.000 kr. 
Staðfesting á stöðu ferils2.000 kr. 
Afgreiðslugjald vegna erlendra umsókna
Vegna nemenda með ríkisfang utan EEAEUR 50
Skólagjöld fyrir sumarönn 2024
Birt með fyrirvara um ásláttarvillur

Gjaldskráin gildir fyrir grunnnám, meistaranám, háskólagátt og aðra þjónustu 2024 til 2025.

Allir nemendur Háskólans á Bifröst í einingabæru námi greiða skráningargjald.   Skráningargjald er greitt gegnum tengil í Uglunni í kjölfar skráningar í nám.  Með greiðslu skráningargjalds staðfestir nemandi skráningu í nám.  Skráningartímabil í nám er tilgreint á heimasíðu skólans. 

 Ef sótt er um nám utan hefðbundins skráningarfrests bætist við sérstakt álag á skráningargjald.  Skráningargjald er ekki endurgreitt ef nemandi hættir námi.  Undantekning er á þessu er ef nemandi getur ekki stundað nám vegna veikinda.  Þarf nemandi að skila inn gildu vottorði og nemur þá endurgreiðslan 75% skrásetningargjaldsins.   

Eindagi skráningargjalds á haustönn er 4. júlí. 

Skráningargjald Háskólans á Bifröst er til að mæta kostnaði sem ekki er annars er ekki greiddur í framlögum frá HVIN.  Þessi kostnaður er m.a.

  •  Kynningarstarf
  • Þjónusta annarra en þeirra er vinna við kennslu- og rannsóknarstörf
  • Kostnaður við upptökur á fjarkennslu
  • Aðgangur að bókasafni skólans
  • Skráningarkerfi nemenda og aðgangur að tölvukerfum
  • Staðlotur nemenda
  • Kostnaður við móttöku nemenda
  • Yfirstjórn og stjórnsýsla
  • Framlög til nemendafélags

 Skráningargjald er óafturkræft

Gjöld vegna prófa

Prófagjöld eru miðuð við þann kostnað sem umsýsla prófa felur í sér þ.e. uppsetning prófagagna greiðslu aðila sem framkvæma fjarpróf ofl. 

Þjónusta námsráðgjafa

Verð fyrir þjónustu námsráðgjafa miðast við þá þjónustu sem keypt er hverju sinni.

Vottorð og kvittanir

Nemendur geta nálgast eftirfarandi yfirlit og staðfestingar í Uglu án endurgjalds:

  • Brautskráningaryfirlit
  • Námsferilsyfirlit
  • Námskeiðalýsingar
  • Staðfesting á brautskráningu
  • Staðfesting á loknum einingum
  • Staðfesting á skólavist
  • Staðfesting á skráðum einingum
  • Staðfesting á stöðu ferils
  • Kvittun fyrir skráningargjaldi

Óski nemandi eftir staðfestu yfirliti eða vottorði hjá skrifstofu er innheimt gjald fyrir það (sjá gjaldskrá).

Gjald miðast við áætlaðan prent- og blaðakostnað auk vinnuliðar.

 Sé óskað eftir gögnum í pósti er póstburðargjald innheimt samkvæmt gjaldskrá Póstsins hverju sinni

Afgreiðslugjald vegna erlendra umsókna

Umsýslu- og afgreiðslugjald vegna umsókna nemenda með ríkisfang utan Evrópska efnahagssvæðisins, að undanskildum Færeyjum og Grænlandi.

Gjaldskrá þessi gildir fyrir nám á haustönn 2024 og þar til ný gjaldskrá er birt.